veiðigjald.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Kristjáni Þórði Snæbjarnarsyni fyrir ræðuna þó að ég sé ekki sammála henni. Það er nefnilega þannig að þegar verið er að tala um skattana þá er verið að tala um að taka 33%. En af hverju? Jú, það er búið að tvöfalda stofninn sem þú ætlar að taka skattinn af. Það er það sem er að gerast. Það er ekki leiðrétting, það er stórhækkun á skattinum. Samkvæmt greinargerð sem unnin var af dr. Ragnari Árnasyni og dr. Birgi Þór Runólfssyni þá nemur veiðigjaldið í dag um 33% af áætluðum hagnaði í fiskveiðum. En í greinargerð þeirra segir að með fyrirhuguðum hækkunum verði virkur tekjuskattur á veiðar á botnfiskstegundum 71% og á uppsjávarfiski um 83%.
Ég velti því fyrir mér hvort hv. þingmaður sé ekki sammála mér um það að ef virkur tekjuskattur, ígildi þess að tekjuskattur sé um 70–83%, meira að segja þó að hv. þingmaður sé skattaglaður og telji að skattar muni leysa öll heimsins vandamál og að verðmætasköpun verði til með því að taka meiri skatta af vinnandi fólki og fyrirtækjum í landinu — ég velti því fyrir mér hvort meira að segja honum þyki ekki nóg um ef skatthlutfallið er komið í 70–83%.