156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[16:05]
Horfa

Kristján Þórður Snæbjarnarson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir góðar spurningar. Ég vil byrja á því að ítreka þennan þátt í málinu, að hér erum við að tala um það hver verðmætin eru sem verið er að draga úr hafinu, hver verðmæti aflans eru og hvernig við ætlum að reikna veiðigjaldið. Um það snýst málið. Málið snýst um að horfa til þeirra raunverulegu verðmæta sem eru dregin að landi og að sjálfsögðu er réttlætanlegt og sjálfsagt í mínum huga að greitt sé gjald fyrir það. Eins og ég sagði í ræðu minni þá er staðan þannig að þessi grein stendur bara býsna vel. Hún stendur það vel, eins og ég kom inn á, að hagnaður er þó nokkur, eigið fé fyrirtækjanna gott, mikið, og ég sé ekki vandamálin í því að samfélagið njóti þessara verðmæta sem samfélagið svo sannarlega á. Auðvitað er eðlilegt að ræða þennan grunn, þessi verðmæti, og leiðrétta það þegar svo mikil skekkja er í þeim verðmætum sem gjöldin greiðast af. Ég fagna því að það sé greitt meira og ég held að flestir geri slíkt hið sama sem eru í þessu og samfélagið í heild sinni.