veiðigjald.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar. Það er gríðarlega gott að fara yfir þessa stöðu. Við sjáum auðvitað í þessari grein eins og öðrum, úr því að hv. þingmaður nefnir einstakt fyrirtæki, að það geta verið sveiflur í rekstri fyrirtækja. Já. Ef við tökum umrætt fyrirtæki þá skilaði það methagnaði árið 2023, methagnaði. Það geta því verið sveiflur, það er bara þannig. Ég held hins vegar að þingmaðurinn hafi lagt mér orð í munn, hvað ég væri sáttur við og hvað ekki. Ég held að við ættum ekkert að ræða það endilega, það eru ekki allt sannindi sem þar komu fram, hvað maður hafi sagt og hvað ekki.
Það sem mér finnst mikilvægt er auðvitað þetta: Að fyrirtæki sem nýta okkar auðlindir greiði sanngjarnt gjald fyrir þær auðlindir. Þetta er ákall þjóðarinnar. Það hefur verið ákall þjóðarinnar að gera þetta með þessum hætti. Það er auðvitað það sem er verið að framkvæma.
Varðandi vegasamgöngur, og nú ætla ég að rifja upp spurninguna um það hvort við ætlum að afmarka það til einstakra sveitarfélaga sem væri þá í hlutfalli við nýtinguna. Ég get ekkert sagt til um það nákvæmlega hér og nú í hvaða vegi fjármagnið fer. En gleymum því ekki að álag á vegakerfið er mismikið og það þarf væntanlega að setja aukið fjármagn í vegi þar sem eru miklir þungaflutningar. Mér finnst ekkert óeðlilegt að það sé eitthvert samhengi þar á milli hlutanna. Ég tel það bara líklegt að þar sem vegir slitna mest verði fjármagnið notað og það er á þessum stöðum.