156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[16:12]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna sem var að vísu mikið til um mjög þröngan hluta í þessari umræðu um arðinn af auðlindinni. Ég hef sagt það hér nokkrum sinnum í dag að stjórnarliðar tala svolítið eins og eini arðurinn og það eina sem kemur til þjóðarinnar fyrir afnot af auðlindinni séu veiðigjöldin, hversu há þau eru. Ég vil því ræða hér við hv. þingmann sem fyrrum formann Rafiðnaðarsambands Íslands. Ég held að það séu fá stéttarfélög sem eru með jafnmarga félagsmenn innan borðs sem hafa í jafn ríkum mæli notið góðs af fjárfestingargetu sjávarútvegsins. Það er sjávarútvegurinn sem hefur staðið að langmestri fjárfestingu í nýsköpun hér á landi, yfir 51 einkaleyfi sem er mikið til í iðnaði en það þarf rafiðnaðarmenntað fólk til að sinna þeirri nýsköpun. Þessi nýsköpun er byggð á þekkingu og reynslu úr sjávarútvegi og hefur notið fjárfestingargetu sjávarútvegins sem skapar aukin útflutningsverðmæti, sem skapar hagvöxt og sem hjálpar svo aftur félagsmönnum stéttarfélagsins að fá hærri laun.

Ég spyr því hv. þingmann: Hefur hann engar áhyggjur af afleiðingum þessa máls fyrir fyrrum félagsmenn sína? Og hvort heldur hann að fyrrum félagsmenn hans — þeir eru kannski enn þá félagsmenn hans í Rafiðnaðarsambandinu, ég hef trú á því að hann sé þar enn — séu að bíða eftir því að við aukum álögur á sjávarútveg eða að bíða eftir verðmætari störfum í sinni grein?