veiðigjald.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir mjög góða spurningu. Mér þykir vænt um þessa spurningu. Mér þykir mjög vænt um þær umræður sem fara fram um atvinnulífið í samfélaginu og þau störf sem verið er að vinna og mikilvægi þess að hafa öflug og stöndug fyrirtæki og að greidd séu góð laun hér á landi. Við viljum öflug störf, vel borguð. Ísland hefur að mörgu leyti verið í fararbroddi með tækniþróun og nýtingu tækninnar þó að við höfum kannski ekki staðið jafn framarlega og frændur okkar Danir, í rafiðnaði sérstaklega, talandi um rafiðnað. Þar hafa frændur okkar verið mjög áfram um að nýta sér allar þær tækninýjungar sem eru í boði og staðið mjög vel að vígi í því.
Varðandi hlutföll starfa rafiðnaðarmanna sem eru alfarið í sjávarútvegi — ég er ekki með þær tölur í kollinum, hversu hátt hlutfall það er. Síðast þegar það var tekið saman, sem er þó nokkuð síðan, var það reyndar ekkert gríðarlega hátt hlutfall. En ég ætla ekki að draga úr því að þessi störf eru mikilvæg og öll þessi þróun tæknibúnaðar í sjávarútvegi sem maður sér þegar maður fer í vinnslurnar, þegar maður fer í fiskvinnslur um allt land. Á þessum stöðum er íslensk tækni nýtt og það er auðvitað gríðarlega verðmætt fyrir okkur, og hún er líka nýtt erlendis. En ég tel að þessi veiðigjöld muni hins vegar ekki ógna þeim störfum sem þar eru.