veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og mig langar að halda áfram á svipuðum slóðum. Ég velti því upp við hv. þingmann hvort við getum verið sammála um að það sé viss arður til þjóðarinnar að skapa fleiri störf og skapa verðmætari störf; skapa útflutningsverðmæti sem mikið til eru einmitt í iðnaði, flest tæknistörfin eru annaðhvort beint í sjávarútvegi eða afleidd störf af sjávarútvegi. Ég held að allt það rafiðnaðarmenntaða fólk sem vinnur hjá Marel t.d. sé kannski ekki skráð sem starfsfólk í sjávarútvegi. En þar er einmitt fjöldi starfa sem eru beintengd því að við fáum þekkinguna úr sjávarútveginum og við fáum fjárfestingargetuna úr sjávarútveginum. Það nýtist yfir í aðrar atvinnugreinar eins og kjúklingaframleiðslu og aðra kjötvinnslu og annað slíkt sem skapar gríðarleg útflutningsverðmæti.
Þegar hér varð bankahrun gekk vel í sjávarútveginum og það gekk vel hjá iðnaðinum, mjög vel, af því að sjávarútvegurinn gat verslað við hann. Svo kom sjómannaverkfall og þá veit ég um stórt rafverktakafyrirtæki sem var við það að fara á hausinn, í sjómannaverkfallinu. En bankahrunið hafði ekki haft nein áhrif. Ég spyr hv. þingmann því enn á ný: Getum við ekki verið sammála um að það sé mikilvægur arður af auðlindinni í hafinu að fá þessi verðmætu störf og þessi tækifæri, þessi vel launuðu störf? Og hvort heldur hann að iðnaðarmenntað fólk sé frekar að bíða eftir vel launuðu starfi eða því að ríkissjóður fái nokkrar aukakrónur í skatttekjur?