156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[16:19]
Horfa

Kristján Þórður Snæbjarnarson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir mjög góðar spurningar. Þetta er gríðarlega mikilvægur þáttur sem nefndur er hér. Ef við byrjum á því að skapa störf í tækniiðnaði þá býr samfélagið það vel að ef við horfum á störf iðnaðarmanna eða samfélagsins í heild þá er dreifing starfa býsna góð hjá okkur. Við erum með öflugar útflutningsgreinar; sjávarútveginn, stóriðjuna, ferðaþjónustuna, og þetta eru auðvitað mjög mikil verðmæti fyrir samfélagið. Í þessum greinum, ef ég tel þær tvær fyrri, sem sagt sjávarútveg og stóriðju — það er sótt í þau störf sem þar eru. Þetta eru störf þar sem tæknin skiptir miklu máli og þau gefa ágætlega af sér, góðir vinnustaðir. Sama á við um sjávarútveginn. En þarna skiptir auðvitað miklu máli hvernig samsetningin er. Og talandi um efnahagshrunið fyrir einum og hálfum áratug — þá skiptir máli að vera með fjölbreyttan markað. Þó að á móti blási á einum stað heldur restin sér á floti, það skiptir miklu máli.

Ég veit að sanngjörn veiðigjöld sem við ræðum hér munu ekki ógna þessu. Þessi fyrirtæki eru líka að þjónusta heiminn með fiskvinnslutækjum og ég er sannfærður um að það mun halda áfram. Þetta eru góð störf og þau verða hér áfram. Ég held að fólk sé bara almennt að kalla eftir því að fá réttlát gjöld af auðlindum sínum; ákall fólksins er um það.