156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[16:37]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Hv. þm. Jón Pétur Zimsen ræddi hér m.a. um skort á greiningum og víkur í máli sínu að því sama og ég hef viðrað oftar en einu sinni í andsvörum mínum frá því í gær. Það háttar hins vegar þannig til að meiri hlutinn hefur ítrekað haldið því fram hér að í frumvarpinu sé að finna allar mögulegar greiningar, þar á meðal greiningar á áhrifum milli landsvæða og byggðarlaga o.s.frv. Ég velti því fyrir mér hvort hv. þm. Jón Pétur Zimsen geti aðstoðað mig við að finna þessar góðu greiningar því að nú er ég búinn að lesa skjalið yfir nokkrum sinnum og ég finn engar raunverulegar greiningar. Ég finn hins vegar fullyrðingar um greiningar en greiningarnar sjálfar kem ég ekki auga á, hvað þá rökstuðning fyrir því hvernig þær voru unnar og hvers vegna niðurstaðan er eins og hún er. En fullyrðingarnar um greiningarnar skortir hins vegar ekki. Þetta er því eiginlega ákall á hjálp, hv. þingmaður.