156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[16:39]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir gott andsvar. Það er fleira fólk en hv. þingmaður sem hefur ekki fundið þessar greiningar. 26 sveitarfélög sendu inn í gáttina umsagnir þar sem þau lýstu áhyggjum sínum af frumvarpinu. Þessi 26 sveitarfélög hefðu ekki gert það ef það væru fullnægjandi greiningar og upplýsingar í frumvarpinu um langtímaáhrif þess á hin ýmsu byggðarlög um land allt. Ég tek undir með þessum 26 sveitarfélögum og ég tek undir með hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni, ég hef ekki fundið þessar greiningar í frumvarpinu en hins vegar hef ég fundið fullyrðingar um að þetta muni ekki hafa áhrif til lengri tíma eða skemmri. Ég held að hver maður sjái að það eru ansi hæpnar fullyrðingar þegar verið er að taka út vaxtarbroddinn því að það fé sem fyrirtæki hafa umfram það að geta rekið sig er vaxtarbroddur til nýsköpunar og það skiptir mjög miklu máli að sá vaxtarbroddur sé til staðar. En ég held að allir sem lesa frumvarpið sjái hvaða áhrif þetta mun hafa á þann vaxtarbrodd. Það mun hafa slæm áhrif að taka fé út úr greininni sem hefur mest áhrif á þann vaxtarbrodd.