156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[16:41]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég heyri að hv. þingmaður á í sama strögli ég. Ég velti fyrir mér, varðandi þessar fullyrðingar, hvort það geti verið hér undir lið 5.1.3, áhrif frumvarpsins á sveitarfélög, þ.e. þessar greiningar sem verið er að fjalla um, með leyfi forseta:

„Einnig tekur ráðuneytið undir hinar fjölmörgu ábendingar sveitarfélaganna um mikilvægi sjávarútvegs í hinum dreifðu byggðum og mikilvægi þess að rekstrarumhverfi þeirra fyrirtækja sé skýrt svo að fyrirtæki í sjávarútvegi geti sinnt sinni mikilvægu samfélagslegu ábyrgð og felst m.a. í heimild til að nýta hina sameiginlegu auðlind þjóðarinnar. Í frumvarpinu eru ekki lagðar til breytingar sem munu fela í sér verulega neikvæð áhrif á rekstrarumhverfi fyrirtækja sem greiða veiðigjald og hafi þau áhrif að útsvarstekjur sveitarfélaga lækki sem hafi svo neikvæð áhrif á fjárhag sveitarfélaga eða útgjöld þeirra. Með frumvarpinu er aðeins verið að leiðrétta og skýra tiltekna þætti við útreikning reiknistofns veiðigjalda og þar með áhrif á fyrirtæki í sjávarútvegi til framtíðar. Það er því niðurstaða ráðuneytisins að frumvarpið feli ekki í sér fjárhagsleg áhrif á tekjur eða útgjöld sveitarfélaga.“

Þetta er fullyrðing sem ekki fylgja neinar greiningar, í það minnsta ekki greiningar sem við, óbreyttir þingmenn, höfum aðgang að. Þetta stendur þarna og eflaust hefur einhver vinna farið fram en hún er hins vegar okkur ekki sýnileg, greint niður á ólík sveitarfélög. Ég tek sem dæmi Norðurþing, Langanesbyggð og Fjarðabyggð, sem eru meðal þessara 26 sveitarfélaga sem hv. þingmaður nefndi að hefðu sent inn umsögn sem efnislega voru að viðra miklar áhyggjur.