veiðigjald.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir gott seinna andsvar. Það var kannski ekki bein spurning í því heldur finn ég bara að hv. þingmaður hefur áhyggjur af stöðunni, hann hefur áhyggjur af sveitarfélögum um land allt, sveitarfélögum sem tilheyra þjóðinni. Það er fólk sem býr úti á landi sem tilheyrir þjóðinni. Vissulega er hlutfall fólks í litlum sjávarbyggðum miðað við fjöldann á Íslandi — það eru fámenn sveitarfélög og litlir byggðakjarnar en þetta er samt sem áður fólk og lífsviðurværi þess skiptir máli. Það skiptir máli að halda byggð í landinu. Það skiptir máli að við getum keyrt hér um og séð uppbyggingu og samfélög þroskast, að það séu ekki allir á flótta úr sjávarbyggðunum. Það skiptir máli. Ég held að við sem höfum rekið heimili vitum að við þurfum tekjur inn og tekjur út til að heimilin gangi, við megum ekki fara yfir á reikningum heimilisins. Og það að ætla að taka gullgæsina, eins og hæstv. ráðherra Inga Sæland hefur nú stundum lýst hér, og slátra henni — ég ætla ekki að segja að þetta sé svo gróft — og grilla hana síðan, það er að ákveðnu leyti að pissa í skóinn sinn, skammtímahagnaður á kostnað pólitískra sérhagsmuna til lengri tíma. Það eru ekki góð vinnubrögð og ekki góð latína.