156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[16:52]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir gott seinna andsvar. Hann talar um sátt. Ég held að sátt í samfélaginu um sem flesta hluti sé góð, algerlega. Ef þjóðin fengi að kjósa um það að hækka veiðigjald, eins og er í þessu frumvarpi, eða að auka heildarskattspor, sem nemur meiri innspýtingu inn í samfélagið en þetta frumvarp gerir, þá held ég að íslensk þjóð myndi kjósa með því að auka skattsporið. Þar myndi nást sátt, miklu betri sátt, þar sem kakan yrði stækkuð, byggðir landsins myndu blómstra, fólk hefði ákveðinn fyrirsjáanleika, væri ekki skattlagt tvöfalt á nokkrum vikum.

Fólk verður að átta sig á því að hér er frumvarp þar sem dregin er upp úr hattinum tvöföldun á veiðigjaldi. Hæstv. forsætisráðherra talaði um að það ætti að taka tíu ár að tvöfalda það. Það er verið að hækka skatta hingað og þangað, þetta er ein skattahækkunin í viðbót. Hvað verður næst? Við verðum að hugsa um heildarsamhengi hlutanna. Þó að þessi skattbyrði lendi ekki persónulega á mér núna þá er þetta vegferðin sem þessi ríkisstjórn er á. Hæstv. ríkisstjórn heldur að það að skattleggja hlutina í drep komi hjólum atvinnulífsins í gang. Því er ég bara alls ekki sammála.