veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur fyrir hennar ræðu þó að ég hafi, eins og oft hefur komið fram í andsvörum í dag, ekki verið fullkomlega sammála öllu sem hv. þingmaður sagði í sinni ræðu. En það eru aðallega orð hennar er snúa að öfund og vondu, ljótu útgerðarkörlunum, eins og hún orðaði það hér áðan, sem mig langar aðeins að spyrja hana út í. Mig langar svo til að átta mig betur á því hvort hv. þm. Rósa Guðbjartsdóttir telji það sérstaka óheppni hjá ríkisstjórninni og ríkisstjórnarflokkunum að hafa þjóðina með sér í liði í þessu máli, hvort það sé alveg sérstaklega óheppilegt. Og svo hitt, hvort Sjálfstæðisflokkurinn leggi þá allt kapp á það að vera andsnúinn þjóðinni þegar kemur að auðlindamálum alltaf og ávallt þegar tækifæri gefst.