veiðigjald.
Herra forseti. Vegna orða hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur tel ég rétt að nefna hér atriði á borð við sölu Landsímans, bifreiðagjaldið, þungaskattinn og nú síðast kílómetragjaldið. Allt átti þetta, eða á, að redda innviðauppbyggingu en mun fara í hítina. Þetta mun fara í hítina enda eru markaðir tekjustofnar bara alls ekkert í samræmi við lög um opinber fjármál. Þess vegna er allt tal um að þær tekjur sem eiga að fást með þessu frumvarpi skuli renna undir bifreiðar okkar landsbyggðarfólks í besta falli góð söluræða. Sagan segir okkur að þær skila sér ekki, þær fara í hítina. Eða telur hv. þingmaður kannski að það gildi einhver önnur lögmál núna?
Til að halda áfram á svipuðum slóðum og ég hef verið í andsvörum mínum langar mig að spyrja hv. þingmann hvort hún telji að nægjanlegar greiningar liggi fyrir á áhrifum á ólík sveitarfélög. Ég hef nokkrum sinnum spurt að þessu. Svörin sem mér hafa borist hafa verið á þá leið að vísa í frumvarpið. Frumvarpið hef ég lesið. Ég finn ekki þessar greiningar þar. Ég finn hins vegar fullyrðingar um greiningar.