156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[17:18]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir andsvarið. Jú, auðvitað. Þetta er í besta falli bara skemmtileg orðræða til að mæla þessu öllu bót. Þetta með að þetta gjald og aukning á því eigi að fara í tiltekin verkefni í samgöngumálum — jú, jú, það eru mýmörg dæmi um það, eins og ég segi, og er bara eitthvað sem hver þingmaðurinn á fætur öðrum er að endurtaka hér að eigi að gerast. Gott og vel. En þetta er líka til að komast hjá því að þurfa að svara þessum sveitarfélögum, af hverju ekki var litið til varnaðarorða sem koma frá 26 sveitarfélögum í landinu. Ég lít svo á að þetta sé svona einhver dúsa upp í þá sem eru að undrast það og eru hvekktir yfir því að ekki hafi verið tekið tillit til varnaðarorða þeirra.

Það voru tvær spurningar. (Gripið fram í.) Hv. þingmaður spurði líka út í greiningarnar og ég kom einmitt inn á það í ræðu minni að þær eru náttúrlega allt of yfirborðskenndar og lagðar á borð hér og svo vísað í einhver ítargögn sem mögulega eru til einhvers staðar. En það er náttúrlega það sem er kannski mest ámælisvert við þetta, og ég kom inn á það í ræðu minni, að það stangast líka alveg á við önnur áform ríkisstjórnarinnar sem er sjálf að leggja fram frumvarp um (Forseti hringir.) fjárhagslegar greiningar varðandi sveitarfélögin, að frumvörp og lög og annað slíkt séu kostnaðarmetin áður en þau verða að veruleika.

(Forseti (IngÞ): Ég minni hv. þingmenn á að eiga ekki í samtölum úr sal við þingmann í pontu þar sem hljóðnemarnir ná heldur ekki því sem þar er sagt og þar með næst ekki allt samhengið.)