156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[17:21]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir annað andsvar. Nei, ástæðan fyrir því að 26 sveitarfélög í landinu, næstum því þriðjungur sveitarfélaga, skila inn svona alvarlegum athugasemdum er sú að það liggja ekki nægar greiningar að baki að þeirra mati. Eins og ég kom inn á í ræðu minni þá hafa stjórnarliðar vísað í að víst sé verið að fjalla um áhrif á sveitarfélögin í frumvarpinu. Það er eingöngu verið að meta áhrif af útsvari þeirra aðila sem eru að greiða veiðigjöld og þá er litið til heimilisfesti þeirra, hvaða áhrif það hefur í sveitarfélögunum þar sem útgerðarmennirnir greiða útsvar. En það eru ekki metin nein önnur áhrif. Það er náttúrlega bara brot af aðgerðinni, þau áhrif sem sú skattlagning mun hafa. (Forseti hringir.) Það vantar því mikið upp á og fjárhagsleg áhrif á sveitarfélögin og önnur áhrif eru algerlega ómetin að mínu mati.