veiðigjald.
Herra forseti. Ég vil nú byrja á að þakka hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur fyrir ágæta ræðu. Það kom fram í máli hennar að hún hafði miklar áhyggjur af þessum álögum og ég ætla aðeins að reyna að leiða henni það fyrir sjónir að þetta eru ekki verulegar hækkanir. Veiðigjaldið á þorsk er eitthvað í kringum 27 kr. á kílóið og síðan koma afslættir og allt það. Og svo er það þessi útgerð sem eftir er í Hafnarfirði, hún er nú í smáum stíl en það eru vissulega vinnslur eftir í Hafnarfirði. En hvað sem því líður þá vil ég benda hv. þingmanni á það að hér liggur á borðinu tilboð, m.a. frá útgerðarmönnum í Hafnarfirði, um að greiða þrefalt núverandi gjald, 100 kr. Það eru útgerðarmenn sem eru smábátasjómenn í Hafnarfirði sem eru tilbúnir að greiða 100 kr. fyrir að fá að veiða kíló af þorski. Og ofan á það eru þeir tilbúnir að greiða þetta gjald. Allar þessar áhyggjur eru því bara úr öllu raunverulegu samhengi og ég vona að Sjálfstæðisflokkurinn átti sig á því að þessi veiðileyfagjöld eru ekki eitthvað sem mun hafa einhver úrslitaáhrif á hvort útgerðir beri sig eða ekki, langt í frá. Því væri fróðlegt að fá að heyra, vegna þess að útgerðarmenn í Hafnarfirði og víðar eru tilbúnir að greiða þessar 100 kr. fyrir hvert og eitt kíló auk veiðileyfagjaldsins, hvort hv. þm. Rósa Guðbjartsdóttir sé tilbúin að stuðla að því að veiðiheimildirnar fari þangað, til þeirra sem geta þá mögulega greitt hæsta verðið, og það er jafnvel í Hafnarfirði.