veiðigjald.
Herra forseti. Nei, ég hef ekki áhyggjur af því vegna þess að tekið hefur verið tillit til athugasemda sveitarfélaga. Ég tel miklu frekar að það sé áhyggjuefni að sveitarfélögin vítt og breitt um landið sjái ekki einmitt ljósið og ávinninginn af þessu frumvarpi. Ég held einmitt að við þurfum almennt að miða hafnargjöld og afkomu sjómanna við markaðsverð og það muni verða ávinningur fyrir sveitarfélögin. En svona í lokin þá vil ég nota tækifærið og benda hv. þingmanni á að það er fyrirtæki í Hafnarfirði sem er tilbúið að gera betur en jafnvel sjómennirnir. Það er fiskvinnslan Tor sem er tilbúin að greiða 150 kr. fyrir kílóið af veiðiheimildum. Og hér er Sjálfstæðisflokkurinn nánast í heilu lagi að býsnast yfir einhverju sem eru smámunir miðað við það sem Hafnfirðingar eru tilbúnir að greiða. (Forseti hringir.) Ég segi nú bara: Ég held að hv. þingmaður ætti að fara betur yfir málið, rétt eins og hv. þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins. (Forseti hringir.) Þeir þurfa að kynna sér þessa atvinnugrein betur.