veiðigjald.
Virðulegi forseti. Hér hefur farið fram umræða um frumvarp atvinnuvegaráðherra sem kveður á um hækkun skatta á sjávarútveg. Það er greinilega mikilvægt í þessari umræðu að ítreka þetta strax í upphafi, eins og segir í frumvarpinu sjálfu, með leyfi forseta:
„Ágreiningslaust er að veiðigjald er skattur í skilningi 40. og 77. gr. stjórnarskrárinnar.“
Það er greinilega mikilvægt að árétta þetta hér í upphafi þar sem stjórnarliðar hafa margir hverjir ítrekað reynst ósammála hæstv. atvinnuvegaráðherra um þessa staðhæfingu. Það er mikilvægt og líka sjálfsagt að rætt sé reglulega um gjaldtöku af auðlindum hér á landi. Ég hélt kannski í einhverri einfeldni minni að þegar rætt er um miklar breytingar á grunnatvinnuvegum okkar þjóðar væri sjálfsagt að umræða um það færi fram á skynsamlegum og yfirveguðum nótum. Sumir myndu einmitt ræða um almannahagsmuni í þessu samhengi því að gjaldtaka af auðlindum tengist ýmsum atvinnugreinum og engum vorkunn að slík umræða fari fram, enda höfum við öll af því hagsmuni að þar sé vel gert. En umræðan er að mörgu leyti í upphrópunarstíl, orðaflaumur um sérhagsmuni, réttlæti, skoðanakannanir og ýmislegt sem kann að hljóma vel. En það er einfaldlega þannig í raunheimum að umræðu um grundvallarmál á borð við þetta á ekki að afgreiða í fússi eða flýti. Hér verður einfaldlega að vanda til verka. Það kemur kannski ekki á óvart að þingmenn ríkisstjórnarflokkanna ræði um stóraukna skattlagningu á atvinnugreinar sem einfalt pennastrik eða leiðréttingu. En það er skaðlegt þegar ráðist er í slíka vegferð í flýti, án fyrirsjáanleika og með litlu samtali við sveitarfélög og atvinnulíf um land allt. Hér er hálfpartinn búið að messa yfir okkur sem viljum knýja fram málefnalega umræðu um málið af hofmóðugum þingmönnum með eitthvað meira af réttlæti í fanginu. Erum við sem viljum einfaldlega fá að sjá gögn, sjá fyrir afleiðingar af þessum stórfelldu skattahækkunum á einn atvinnuveg umfram aðra þá að tala fyrir óréttlæti? Nei, það gildir nefnilega einu hversu viss þú ert í eigin sök, hversu sannfærður þú kannt að vera um að þú haldir á öllu réttlæti heimsins í fanginu, þegar hagsmunir á borð við þá sem íslenska þjóðin hefur af sjávarútvegi eru undir. Það er einfaldlega skynsamlegt og líka sanngjarnt, af því að þingmönnum hér verður tíðrætt um sanngirni, að umræða fari fram um svona miklar breytingar, að lögð séu fram gögn og samtal tekið um hvernig rétt sé að halda á málum þótt sú atvinnugrein nefnist sjávarútvegur og þingmenn virðist margir hverjir hafa sérstakan áhuga á að tala hann niður við hvert tækifæri. Eða finnst hv. þingmönnum til að mynda það ekki almannahagsmunir að stuðla að aukinni verðmætasköpun í þessu landi?
Eru það ekki almannahagsmunir að tryggja fyrirsjáanleika svo fyrirtæki geti gert áætlanir og fjárfest í tækjum, tólum og grænum lausnum? Eru það ekki almannahagsmunir að búa til verðmæt og vel borguð störf sem eru ekki bara hér á höfuðborgarsvæðinu? Eru það ekki almannahagsmunir að hægt sé að halda úti blómlegri byggð víðar en á þessum bletti þar sem við stöndum nú? Og eru það ekki almannahagsmunir að fjárfest sé í nýsköpun og hún blómstri og bæti enn frekar við verðmæti, tækifæri og störf? Við erum öll hér að gæta að hagsmunum almennings. Ég frábið mér því að þingmenn sem vilja ræða frumvarpið, gögnin og áhrifin séu ekki að hugsa um almannahag þegar þeir gagnrýna þetta frumvarp réttilega. Við erum sammála um mjög margt. Við erum sammála um að sjávarútvegurinn eigi að greiða veiðigjald en munurinn snýst einfaldlega um það að við viljum að ávinningurinn tryggi að það verði stóraukin verðmætasköpun, skýr áætlun fyrir Ísland um uppbyggingu atvinnugreina og nýsköpun og fleiri störf um land allt og sterkar byggðir. Við höfum einfaldlega þá staðföstu trú að ríkisstjórnarflokkarnir séu þarna að byrja á öfugum enda, hratt, og afleiðingarnar séu bæði óvissa fyrir byggðir landsins, starfsfólk, fyrirtæki og ríkissjóð.
Virðulegi forseti. Til að þjóðin fái í raun aukna hlutdeild eins og hluta af þingheimi verður tíðrætt um þá verður að auka verðmætasköpun og nýsköpun á sama tíma. Maður hefði haldið að fleirum væri umhugað um slíkt til að standa undir þeirri velferð til lengri tíma og uppbyggingu innviða um allt land sem við viljum öll tryggja. Ég hef meira að segja heyrt hæstv. forsætisráðherra fleygja fram orðunum um mikilvægi þess að stækka kökuna en það er stundum auðveldara til skamms tíma að slá sig til riddara og fara leið vinstri manna og hækka bara skatta. Ég hef áhyggjur af því að hér séum við bara rétt að byrja þótt hér sé tekið stórt stökk allt í einu. Aðrar atvinnugreinar verða nefnilega næstar og aðrir skattstofnar, þ.e. fólk og fyrirtæki. Þó að það hafi verið margítrekað í aðdraganda kosninga að það eigi ekki að hafa áhrif á venjulegt fólk þá er ljóst að óvenjulega fólkið verður undir, fólk í sambúð og síðan líklega hárgreiðslufólk, fólk í ferðaþjónustu, fólk í iðnaði og nýsköpun og ég gæti áfram talið.
Hæstv. forseti. Í umræðunum hér í dag hefur líka komið fram að þeir sem gagnrýna þetta frumvarp séu bara að tala fyrir eina atvinnugrein. Í frumvarpinu sjálfu er í raun margt að ræða og mig langar að horfa aðeins í það samfélag sem þessi atvinnugrein hefur skapað og hvernig hún hefur ýtt undir aðrar atvinnugreinar og hvernig fjöldi annarra fyrirtækja í iðnaði og nýsköpun hefur einmitt dafnað í kringum þessa atvinnugrein; fyrirtæki sem byggja starfsemi sína í kringum verðmætasköpun sjálfbærs sjávarútvegs. Það er ekki langt síðan við fengum að kynnast því hversu mikilvægt er að hlúa að fjölbreyttu atvinnulífi og stóla ekki á eina atvinnugrein, að við setjum eggin í fleiri körfur.
Yfir heimsfaraldurinn sagði aðalhagfræðingur Arion banka að hugvitið eða íslensk nýsköpun hefðu t.d. verið riddarinn á hvíta hestinum til að koma okkur í gegnum kófið, riddarinn sem gerði það að verkum að við komumst betur og hraðar út en annars hefði orðið þegar gaf á bátinn í ferðaþjónustunni. Íslensk nýsköpun hefur vaxið síðustu ár, margfaldað tekjur sínar, skapað fjölda nýrra starfa og nýjar lausnir. Þar eru mörg fyrirtæki sem byggja á íslenskum sjávarútvegi. Sum eru í tækniþróun. Önnur er í menntatækni, önnur eru í heilbrigðisvísindum, drykkjarföngum, líftækni, flutningsþjónustu og ég gæti haldið áfram að telja. Tenging nýsköpunar og sjávarútvegs er mun meiri en látið er að liggja í þessum ræðustól þar sem stundum er talað eins og sjávarútvegur tengist engum öðrum atvinnugreinum. Þegar hv. þingmenn segja að þeir þingmenn sem vara við frumvarpinu hafi bara áhyggjur af þessari atvinnugrein þá skilur fólk ekki samhengi hlutanna.
Ég leyfi mér að nefna dæmi svo fólk fái tilfinningu fyrir því hversu stór partur þetta er af íslenskri nýsköpun í dag. Hugverkastofa gerði t.d. á því greiningu að fimmtungur íslenskra einkaleyfisumsókna tengist sjávarútvegi og meira en helmingur útgefinna einkaleyfa eigi rætur að rekja til greinarinnar; helmingur einkaleyfa sem gefin eru út um íslenska nýsköpun í fjölda fyrirtækja með mjög mismunandi bakgrunn, eins og ég rakti hér áðan. Þetta undirstrikar auðvitað hversu mikilvæg nýsköpun hefur verið innan sjávarútvegsins og hversu sjávarútvegurinn hefur verið mikilvægur fyrir nýsköpun og ný og fjölbreytt tækifæri og tæknilega þróun. Af hverju nefni ég þessi fyrirtæki sérstaklega í ræðu minni? Því að það er ástæða til þess hér í þessari umræðu að við áttum okkur á því hvort skattar sem hér eru boðaðir í dag dragi úr þessari nýsköpun og fjárfestingu í nýsköpun. Það eru stórar spurningar sem verður að svara.
Íslenskur sjávarútvegur er nefnilega ekki að ástæðulausu fremstur í heimi þegar kemur að sjálfbærni og fullnýtingu auðlinda og þróun nýrrar verðmætasköpunar úr hliðarafurðum sem áður var hent. Þetta sést líka glögglega í umsögnum um frumvarpið, áhyggjur þessara fyrirtækja um skerta getu til að fjárfesta í dýrum tækni- og nýsköpunarlausnum. Þau benda mörg hver á að samstarfið hafi gert íslenska tækni að útflutningsvöru og vara við því að skerðing á fjárfestingargetu myndi draga úr verðmætasköpun. Á þessu verða að liggja fyrir greiningar af því að þetta hefur raunverulega áhrif á íslenska nýsköpun. Og lausnirnar eru ekki bara að skila útflutningstekjum í formi vara, í nýjum störfum um land allt og ég gæti áfram talið, heldur eru einnig að bjarga lífi fólks um heim allan, eins og við þekkjum svo vel um sögu einhyrningsins okkar Kerecis. Það má nefna hér í þessum sal að hugverkaréttindi þess fyrirtækis, sem á sér stoð í sjávarútvegi, skilaði sér í 40 milljörðum í skatttekjum til ríkissjóðs. Eigum við ekki frekar að búa til fleiri einhyrninga?
Virðulegur forseti. Mig dreymir stundum um það, og það er kannski skrýtið, að í þessum sal fari fram stjórnmálaumræða sem snýst um það hvernig við getum bætt umhverfi fyrir fyrirtæki, stór og smá, af öllum gerðum og í öllum greinum. Mig dreymir um að við getum rætt hvernig við getum ýtt undir að fleiri slíkar sögur verði til, hvernig nýjar stoðir í hagkerfinu geta orðið til svo að eggin fari í fleiri körfur og hvernig við getum orðið tilbúin til að takast á við það sem reglulega gerist, óvænta atburði, en stækka líka okkar sterku og hefðbundnu útflutningsgreinar sem við þekkjum svo vel og erum að ræða um í dag. Útflutningsverðmæti af þorski eru skýrt dæmi um tölur sem allir ættu að skilja þar sem verðmætin hér eru hærri en í Noregi, sem títt er talað um, og verða verulega hærri þegar tekjurnar af sölu Kerecis eru reiknaðar inn. Það er mikilvægt að við vitum hvernig þetta frumvarp hefur áhrif á fjárfestingu og nýsköpun. Mér er umhugað um að slíkar greiningar verði gerðar og þykir það eðlilegt miðað við þá uppbyggingu sem íslensk nýsköpun hefur verið síðustu ár sem má ekki stoppa. Ég setti mér það markmið, þegar ég tók við embætti nýsköpunarráðherra, að hugvitið yrði í fyllingu tímans okkar stærsta útflutningsgrein. Ég veit að hún sveiflast minna en þær útflutningsgreinar sem stóla á auðlindir sem við ráðum ekki yfir. Það myndi skila okkur fleiri tækifærum að stækka aðrar útflutningsgreinar, af því að nýsköpun, hvort sem er í ferðaþjónustu, sjávarútvegi, áliðnaði eða öðru, skapar lausnir sem skila okkur auknum verðmætum og aukinni framleiðni, ekki síst ef við þorum að fjárfesta í tækni og breytingum. Ég vona að núverandi ríkisstjórn hafi slík áform fyrir íslenska þjóð, þori að vera stórhuga og hugsa lengra en eitt kjörtímabil eins og markmiðið sem ég setti mér í upphafi minna starfa — og við náðum gríðarlegum árangri þegar kemur að því hvaða tekjur við erum að fá. Eins og hv. þm. Dagur B. Eggertsson fór svo vel yfir hér varð hugvitið einu sinni stærra en sjávarútvegur. En við verðum fyrst og fremst að þora að nýta tækni og framtakssemi einstaklinga að fullu.
Virðulegi forseti. Við skulum vera sammála um mikilvægi atvinnugreinarinnar. Við skulum vera sammála um mikilvægi þjóðarhags og að vel sé gert. Við skulum vera sammála um að hér sé frumvarp og breyting sem á skilið öfluga umræðu og greiningar og gögn til að við getum tekið upplýsta ákvörðun um áhrifin á samfélagið í heild, ekki bara nýsköpun sem ég hef talað um heldur líka sveitarfélög og annað sem aðrir þingmenn hafa lagt til í þessa umræðu. Ákvarðanir sem hér eru teknar verða einfaldlega að byggja á gögnum sem hafa góð áhrif fyrir Ísland til lengri tíma.