veiðigjald.
Virðulegi forseti. Mig langar að þakka hv. þm. Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur fyrir mjög innblásna og metnaðarfulla ræðu. Maður getur ekki annað en komist við. Það er þannig að á Austurlandi, þar sem ég bý, höfum við auðvitað tvíbentar tilfinningar til sjávarútvegs. Við erum þar með bæi sem hafa ekki lengur sjávarútveg og aðra bæi sem hafa mjög sterkan sjávarútveg. Auðvitað skilur maður að tilfinningar eru blendnar á þeim stöðum þar sem sjávarútvegurinn hefur hörfað, þar hafa menn kannski sterkari tilfinningar til þess að hér sé þetta frumvarp lagt fram og meiri arður tekinn af fyrirtækjum í sjávarútvegi. Það er samt þannig að fyrir stuttu lokaði Síldarvinnslan á Seyðisfirði og það var ekkert minna en áfall fyrir samfélagið. Við erum núna að vinna með það að á Stöðvarfirði á að framlengja verkefnið Brothættar byggðir í eitt ár. Það hefur verið í gangi í þrjú ár. (Forseti hringir.) Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hún telji að ekki hefði verið betra að fá þessar tekjur með öðrum leiðum en þeim sem lagðar eru til í þessu frumvarpi.