156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[17:47]
Horfa

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Ég veit að hún þekkir vel til sinna svæða, hvað sjávarútvegur gerir fyrir slík þorp en líka hvað gerist þegar það verða högg og breytingar. Við þekkjum það, bæði úr sjávarútveginum og þegar uppsagnir verða og breytingar í öðrum atvinnugreinum, að slíkt hefur gríðarleg áhrif og ekki síst á minni samfélög. Það er þess vegna sem mér finnst skjóta talsvert skökku við hvernig umræðan hefur verið hér í salnum þar sem lítið er gert úr sveitarfélögum sem byggja allt sitt samfélag í kringum sterk sjávarútvegsfyrirtæki. Mér þykir miður að áhyggjur þeirra séu slegnar út af borðinu eins og einhver ódýr pólitík, af því að ég veit að þetta eru raunverulegar áhyggjur í mörgum landsbyggðarkjördæmum og á mörgum stöðum á landinu öllu. Ég held jú að fyrst og fremst væri betra að hafa hér öflugri greiningar til að geta lagt alvörumat á (Forseti hringir.) þessa stórfelldu hækkun. En svo hef ég fulla trú á íslenskum atvinnugreinum og tel að þessar tekjur gætu skilað sér með því að stækka kökuna.