veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir greinargott svar. Það er alveg rétt, og ég tek undir það, að það er ekkert minna en stórkostlegt áfall ef þessi samfélög missa eða minnka við sig þá fiskvinnslu sem nú þegar er eftir. Austurland er með um 25% af útflutningsverðmætum Íslands. Ef það minnkar þá segir það sig sjálft að þetta 11.000 manna samfélag sem er á Austurlandi mun bera skarðan hlut af, það er deginum ljósara.
Mig langaði að spyrja hv. þingmann, sem hefur starfað sem ráðherra, hvort hún sem fyrrum ráðherra telji að það sé skynsamleg nálgun að vera að lofa meintum innviðauppbyggingarverkefnum á landsbyggðinni þegar fullt af tekjum kemur í raun af landsbyggðinni og við höfum ekki séð þær innviðauppbyggingar skila sér nógu vel til okkar það sem af er og hefur verið núna síðustu áratugi. Ekki bara hjá síðustu ríkisstjórn heldur bara undanfarna áratugi hefur skort sárlega á hinar ýmsu vegabætur. Það eru t.d. þungaflutningar á Austurlandi til beggja átta.