veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir. Ég hef persónulega reynslu af því að þegar ríkisstjórnir hækka skatta smá, til að segjast ætla að gera ákveðna hluti, þá fer það í hít ríkissjóðs og útgjaldaaukning sýnir síðan engan ávinning eða árangur í uppbyggingu innviða, hvorki fyrir ákveðin svæði né landið í heild. Það er nú bara þannig að ríkið fer allt of illa með fjármuni skattgreiðenda. Hér eru skattar mjög háir, bæði á fólk og fyrirtæki, og það væri gríðarlega ánægjulegt ef við fengjum fleiri í lið með okkur til að tala fyrir því hvernig við getum stóraukið verðmæti, framleiðni, í þessu landi með fjárfestingum í gervigreind og nýsköpun af því að ég hef svo mikla trú á því að þannig gætum við stóreflt fjárfestingu okkar í innviðum; ef við myndum þora að hugsa aðeins út fyrir boxið og átta okkur líka á því að ríkið eigi ekki að gera alla hluti.