veiðigjald.
Frú forseti. Þetta eru ekki innantómar ábendingar, það eru einfaldlega tölulegar staðreyndir að það liggur á borðinu tilboð um margfalt hærra veiðileyfagjald en við erum að ræða hér frá minni útgerðum. Og af því að ég trúi því að hv. þingmaður beri hag þjóðarinnar fyrir brjósti þá verður líka að líta til þess að umræddar útgerðir landa þá frekar dagróðrafiski sem skilar alla jafna verðmætari fiski á markað en togarafiski. Ég vona svo sannarlega að hv. þingmenn af öllum kynjum í Sjálfstæðisflokknum taki þessar ábendingar ekki illa upp heldur bara fari yfir málið því að tölurnar tala sínu máli. Það liggur fyrir að aðilar úti í samfélaginu eru tilbúnir að greiða 150 kr. fyrir veiðiheimildirnar og 100 kr. plús núverandi gjald. Þetta eru einfaldlega staðreyndir sem liggja fyrir og ég vona svo sannarlega að hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins taki þessu vel.