156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[17:54]
Horfa

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þótt ég telji að tölur og útreikningar hv. þingmanns séu bara hálf sagan þá þykir mér samt vænt um að hv. þingmanni sé umhugað um tölulegar staðreyndir. Það gleður mig. Þá ætla ég líka á móti að vona að hann taki því ekki illa að ég sé að biðja ríkisstjórnina að koma hér með almennilegar tölulegar staðreyndir, almennileg gögn og svör við þeim áhyggjum sem ég set fram í ræðu minni um íslenska nýsköpun og framfarir fyrir íslenska þjóð og byggðir í landinu. Ég vona að hv. þingmanni sé það umhugað um tölulegar staðreyndir að hann hjálpi mér til að afla þessara gagna svo að við getum skoðað frumvarpið betur hér í þinginu.