veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni og ég veit að henni er umhugað um uppbyggingu nýsköpunar sem byggist á okkar öflugu atvinnugreinum. Mér finnst þessi partur af frumvarpinu bara einlæglega mjög vanhugsaður. Ég hef áhyggjur af því að fólk átti sig ekki á því hversu stór hluti af íslenskri nýsköpun byggist og grundvallast á íslenskum sjávarútvegi en ekki síst líka hvað fjárfesting þessara öflugu fyrirtækja í nýjum lausnum og búnaði og frumkvöðlum skiptir miklu máli fyrir frumkvöðlaumhverfið í heild sinni. Ég hef heyrt frá mörgum frumkvöðlum — við fáum reglulega skilaboð og ég hef talað við nokkra síðustu daga — sem hafa líka verið að lýsa því sem er að gerast í heiminum varðandi tollastríð. Við sjáum líka að vextir eru kannski ekki að fara að lækka hratt þó að hæstv. forsætisráðherra hafi ætlað að berja þá niður o.s.frv. (Forseti hringir.) Þetta hefur allt áhrif á umhverfi nýsköpunarfyrirtækja og það er eiginlega ekki á það bætandi þegar við ætlum að verða nýsköpunarlandið Ísland.