156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[17:58]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og við deilum greinilega þessum áhyggjum. Mig langaði aðeins að fá að nýta seinna andsvarið í spurningu varðandi áhyggjur 26 sveitarfélaga sem hafa mótmælt frumvarpinu harðlega frá því að það var kynnt. Þau hafa áhyggjur af því að í heild hafi tvöföldun veiðigjalds — þau hafa áhyggjur af því að missa útsvarstekjur og að byggðarlögin muni standa ver eftir að þessi skattahækkun hefur komið til framkvæmda.

Mig langar að spyrja hv. þingmann hvers vegna hún telur að ríkisstjórnarmeirihlutinn hafi skellt skollaeyrum við áhyggjum, réttmætum áhyggjum, þessara sveitarfélaga og haldi bara ótrauð áfram með þessar fyrirætlanir sínar.