veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að koma hér upp í pontu og ræða makríl. Ég hef sérstakan áhuga á makríl enda fór ég á makrílveiðar og þekki íslenskan makríl ágætlega. Það var mjög skemmtileg upplifun og ég fékk að kynnast lífi sjómannsins en líka útgerðarinnar. Ég las þessa grein á Vísi bara rétt áðan, kláraði hana ekki alveg en er að vinna í því, en hún virtist færa fyrir því mjög góð rök að þetta sé ósamanburðarhæft, að hér væri verið að bera saman epli og appelsínur. Ég held að það sé sérlegt áhyggjuefni ef þær greiningar og samanburður sem við fáum fram í þessu frumvarpi standast ekki og svo bætist ofan á það að í því eru litlar sem engar greiningar svo að hægt sé að taka afstöðu til þess hvaða áhrif frumvarpið hefur. Þá erum við ekki byrjuð að ræða það að við séum að miða við sjávarútveg annarra landa og bara almennt hversu samanburðarhæft það er yfir höfuð. (Forseti hringir.) Við eigum að búa til samkeppnishæfan sjávarútveg sem stenst samkeppni við sjávarútveg í öðrum löndum og það gerir hann vel í dag.