156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[18:05]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M):

Virðulegur forseti. Það hefur verið áhugavert að fylgjast með þessari umræðu. Skattar tvöfaldaðir í formi hækkunar veiðigjalds og hefur ekki áhrif á neinn, sagði ríkisstjórnarmeirihlutinn í ræðum sínum í gær og í dag. Þetta er raunar ekki í samræmi við umsagnir eða það sem lesa má í greinargerð með frumvarpinu, að ég tel alla vega. Frumvarpinu sem dreift var á þingi hefur verið lítillega breytt að loknu samráði í samráðsgátt stjórnvalda. Frítekjumark í þorski og ýsu skal nú nema 40% af fyrstu 50 millj. kr. álagningar veiðigjalds hvers árs hjá hverjum gjaldskyldum aðila í stað fyrstu 9 millj. kr.

Virðulegur forseti. Mér hefur þótt athyglisvert að hlusta á stjórnarliða berja sér á brjóst yfir áætluðum skattahækkunum í formi aukins veiðigjalds og kalla slíkt leiðréttingar. Ég er alveg sérstaklega hugsi yfir afstöðu stjórnarliða í sjávarbyggðum landsins til þessa frumvarps, þegar þeir koma hér upp og segja að þeir hafi engar áhyggjur, að þetta verði allt í lagi og þetta sé sanngjarnt. En ef hlutirnir verði ekki í lagi þá sé það útgerðunum að kenna. Punktur. Svona málflutningur stenst auðvitað enga skoðun. Lítið sem ekkert samráð hefur verið haft við sveitarstjórnir sjávarbyggða, það fylgja fábrotnar ef einhverjar greiningar á mögulegum áhrifum á byggðarlög af hálfu stjórnarmeirihlutans. Engin gögn lögð fram af hálfu stjórnarmeirihlutans um áhrif á landsbyggðina né einstök sveitarfélög sem er auðvitað með öllu óásættanlegt. Mikið virðist byggt á norskri greiningu og norskum markaði. Furðulegt það. Er næst á döfinni hjá meiri hlutanum að miða húsnæðismarkaðinn á Íslandi við fasteignaverð í Ósló? Ég bara spyr.

Öllum athugasemdum sem tæpt er á í greinargerð er svarað á þann veg að áhrifin verði óveruleg og þess vegna verði ekki tekið tillit til nánast allra athugasemda og ekki verði tekið tillit til þess hve margir hafa áhyggjur af málinu, réttmætar áhyggjur. Er ekki næg óvissa í alþjóðahagkerfinu fyrir og þar af leiðandi í því íslenska? Þarf virkilega að bæta þessari óvissu sérstaklega á sjávarbyggðir landsins, á venjulegt launafólk? Ég heyri það a.m.k. víða frá sjávarbyggðunum um landið að fyrirhuguð breyting geti haft í för með sér alvarlegar afleiðingar fyrir sjávarútvegssveitarfélög sem reiða sig á greinina til atvinnu- og tekjuöflunar. Áhyggjurnar eru raunverulegar og vonbrigðin mikil að ekki sé tekið mark á þeim sem þessi skattahækkun mun bitna hvað harðast á, á sjávarbyggðum landsins. Starfsemi og uppbygging sjávarútvegsfyrirtækja er mjög mismunandi og áhrif og umsvif þeirra í einstökum byggðarlögum og sveitarfélögum að sama skapi. Tekjur margra sveitarfélaga byggja að verulegu leyti á starfsemi og launþegum í sjávarútvegi. Í tíu sveitarfélögum eru á bilinu 30–50% af útsvari vegna atvinnutekna frá sjávarútvegi. Þá eru ótalin afleidd störf í öðrum greinum sem byggjast að mestu eða jafnvel alfarið á þjónustu við sjávarútveginn.

Tölum aðeins um sjávarútveginn. Íslenskur sjávarútvegur er ein af grunnstoðum íslensks efnahagslífs. Á síðustu árum og áratugum hefur orðið mikil þróun í greininni, m.a. í meðhöndlun afla, fullvinnslu hráefnis og aukinni verðmætasköpun, til að mynda með nýtingu aukaafurða. Fjárfestingar í nýrri tækni, búnaði og fiskiskipum hafa aukið skilvirkni í rekstri og um leið gæði og verðmæti afurða. Á síðustu árum hafa þannig mörg fyrirtæki í sjávarútvegi lagt áherslu á nýsköpun, tækniþróun og aukna verðmætasköpun sem við ættum öll að fagna. Þessi þróun hefði ólíklega átt sér stað ef fyrirtæki hefðu ekki getað byggt upp og fjárfest. Þetta hefði ekki verið hægt ef hagnaður hefði ekki verið af starfseminni. Ólíklega hefði t.d. hið verðmæta nýsköpunarfyrirtæki Kerecis orðið til, ég leyfi mér að efast um það.

Aðeins meira um sjávarútveginn: Vægi sjávarafurða í útflutningstekjum nam 18% árið 2024. Fjölmörg fyrirtæki starfa innan greinarinnar og eru þau um margt ólík innbyrðis, bæði að stærð og gerð. Íslenskur sjávarútvegur samanstendur því af fjölbreyttri flóru fyrirtækja. Eins og flestir vita hér sem hafa tekið þátt í þessari umræðu greiddu yfir 900 aðilar veiðigjald, allt frá einyrkjum sem stunda smábátaútgerð til stórra félagasamstæða. Ég vil líka minna á þá staðreynd að ríflega 80% af skattspori sjávarútvegs verða til á landsbyggðinni. Hvers á landsbyggðin að gjalda? Eftir að frumvarpið var birt í samráðsgátt bárust yfir 100 umsagnir frá einstaklingum, fyrirtækjum, hagsmunaaðilum, sveitarfélögum, félagasamtökum og stofnunum. Þetta er skiljanlegt þar sem málið er stórt og afleiðingarnar raunar ófyrirséðar og áhyggjur margra miklar.

Í frumvarpinu eru sem sé lagðar til breytingar á skráðu aflaverðmæti fyrir tiltekna nytjastofna við útreikning reiknistofns veiðigjalds samkvæmt lögum um veiðigjald, nr. 145/2018, og er sagt að markmið frumvarpsins sé að tryggja að reiknað aflaverðmæti tiltekinna nytjastofna endurspegli betur raunverulegt aflaverðmæti og þar með réttlát auðlindagjöld fyrir aðgang að sjávarauðlindinni sem sýnilega hlutdeild í afkomu við veiðar á nytjastofnum sjávar. Einnig er frumvarpinu ætlað að mæta betur tilgangi innheimtu veiðigjalda, skv. 1. gr. laganna, að mæta kostnaði ríkisins við rannsóknir, stjórn, eftirlit, umsjón með fiskveiðum og fiskvinnslu og til að tryggja þjóðinni í heild beina og sýnilega hlutdeild í afkomu við veiðar á nytjastofnum sjávar.

Virðulegur forseti. Það er nú þannig að frumvarpið, nái það fram að ganga, eykur óvissu á fjölmörgum sviðum, eykur ekki síst óvissu um afkomu og lífsviðurværi hins vinnandi manns í sjávarbyggðum landsins. En stjórnarliðum virðist slétt sama um það. Þeir blása á allar áhyggjur; bara misskilningur, vitleysa, útúrsnúningur, hroki, tengslarof, sérhagsmunir — þessi orð hefur oft borið á góma í umræðunni. En ég spyr: Er enginn í þessari ríkisstjórn sem hefur rekið fyrirtæki og þekkir hvaða skilyrði þurfa að vera fyrir hendi til að fyrirtæki beri sig og að yfir höfuð sé þess virði að vera í rekstri? Þegar skattar eru hækkaðir þarf að hagræða, það segir sig sjálft.

Mig langar að fara yfir nokkur atriði í greinargerð við frumvarpið. Þar segir, með leyfi forseta:

„Einnig var kannað hvort norska ríkið hefði aðkomu að rekstri vinnslna í Noregi í formi ríkisstyrkja og þá hvernig. […] Greiningin staðfestir jafnframt að vinnslur í Noregi njóta ekki beinna ríkisstyrkja umfram aðrar atvinnugreinar.“

— Ég endurtek: Greiningin staðfestir jafnframt að vinnslur í Noregi njóta ekki beinna ríkisstyrkja umfram aðrar atvinnugreinar. Hvað er átt við hér? Hér er auðvitað verið að staðfesta að vinnslur í Noregi séu ríkisstyrktar og að norskur sjávarútvegur sé ríkisstyrktur. Höfum það á hreinu. Íslenskur sjávarútvegur er ekki ríkisstyrktur og er gjörólíkur þeim norska. Íslenski sjávarútvegurinn er líklega sá eini á heimsvísu sem er ekki ríkisstyrktur og er í samkeppni við ríkisstyrktan sjávarútveg um allan heim. Fjölmörg sveitarfélög í mínu kjördæmi, Norðvesturkjördæmi, hafa þungar áhyggjur og það sést á innsendum umsögnum. En það eru auðvitað miklu fleiri sveitarfélög sem hafa áhyggjur. Hvað varðar athugasemdir og áhyggjur sveitarfélaga af áhrifum frumvarpsins á sveitarfélög þá segir í greinargerð að það sé niðurstaða ráðuneytisins að frumvarpið feli ekki í sér fjárhagsleg áhrif á tekjur eða útgjöld sveitarfélaga. Með leyfi forseta:

„Breytingar samkvæmt frumvarpi þessu munu ekki fela í sér verulega neikvæð áhrif á rekstrarumhverfi fyrirtækja sem greiða veiðigjald og munu þar af leiðandi ekki hafa neikvæð áhrif á útsvarstekjur sveitarfélaga. Í töflu 25 má sjá breytingu á veiðigjaldi á fyrirtæki sem skráð eru í tilgreindum sveitarfélögum.“

Hér er sum sé staðfest að breytingarnar muni hafa neikvæð áhrif á rekstrarumhverfi fyrirtækja en ekki verulega neikvæð. Hver er munurinn, „neikvæð“ og „verulega neikvæð“ — hefur einhver skýringu á því?

Í umsögnum var lýst áhyggjum af því að verði frumvarpið að lögum muni það draga verulega úr fjárfestingargetu fyrirtækja í sjávarútvegi og þá sérstaklega í fiskvinnslu. Þessu svarar ráðuneytið þannig í greinargerðinni:

„Þær breytingar sem frumvarpið mælir fyrir um einar og sér munu því að mati ráðuneytisins ekki hafa þau áhrif að draga úr fjárfestingargetu fyrirtækja í sjávarútvegi til framtíðar.“

Svo mörg voru þau orð. Hvernig var það mat framkvæmt í vinnu ráðuneytisins? Ég hef ekki séð það mat.

Í umsögnum var bent á að taka þurfi meira tillit til lítilla og meðalstórra útgerða í frumvarpinu. Bæði var kallað eftir nánari greiningu á áhrifum frumvarpsins á einstakar útgerðir og að hvaða leyti fjölbreyttum og sjálfstæðum rekstri fyrirtækja verði viðhaldið í sjávarútvegi.

Varðandi breytingar á frítekjumarkinu sem eiga að koma til móts við litlar og millistórar útgerðir þá tel ég að það breyti engu um endanlegar afleiðingar tvöföldunar veiðigjalds fyrir þessar útgerðir. Ég velti því reyndar fyrir mér hvort slík handvalning sé leyfileg og standist stjórnarskrá og er auðvitað meðvituð um að þau sem leggja frumvarpið fram telja slíkt standast stjórnarskrá. Ég er hins vegar ekki sannfærð um það. Ég tel að hér sé um að ræða tilraun til að sefa gagnrýnisraddir en afleiðingarnar verða þær sömu. Fleiri og fleiri minni útgerðir selja kvótann sinn vegna þess að hækkun veiðigjalda verður þeim um megn. Þessi þróun er þegar hafin, er mér sagt. Ef markmiðið er að auka samþjöppun í sjávarútvegi og bola fiskvinnslu úr landi þá er þetta frumvarp sennilega að ná því markmiði. Ef markmiðið er að auka samþjöppun í sjávarútvegi og bola fiskvinnslu úr landi þá er þetta frumvarp, og ég endurtek, líklega að ná því markmiði. Veiðar og vinnsla slitna í sundur og verður til þess að óunninn afli verður fluttur úr landi til svæða þar sem laun eru lægri og þar fram eftir götunum. Þá hefur verið bent á það í umsögnum að þær breytingar sem frumvarpið mælir fyrir um muni leiða til frekari samþjöppunar í sjávarútvegi og þar með leiða til fækkunar starfa. Þessu er svarað í greinargerð þannig að með frumvarpinu séu ekki lagðar til breytingar er leiði til frekari samþjöppunar í sjávarútvegi og að ekki sé kveðið á um breytingar sem hafa veruleg áhrif á rekstrarskilyrði fiskvinnslna og því verði ákvörðun um frekari samþjöppun fiskvinnslna ekki rakin til breytinga á frumvarpinu. Þá segir einnig í greinargerð:

„Í ljósi framangreinds verður ekki séð að þær breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu séu til þess fallnar að veikja samkeppnisstöðu sjávarútvegs nema að óverulegu leyti og hvorki á erlendum mörkuðum né innan lands.“

Ég þurfti að lesa þetta tvisvar. Ég endurtek: Skekkir ekki samkeppnisstöðu nema að óverulegu leyti. Hér er sem sé staðfest að frumvarpið skekki samkeppnisstöðu íslensks sjávarútvegs. Ja hérna hér. Getur einhver stjórnarliða skýrt út fyrir mér hvernig hægt er að leggja fram frumvarp þar sem kemur fram í greinargerð að það skekki samkeppnisstöðu einnar undirstöðuatvinnugreinar Íslands? Í alvöru? Er ríkisstjórnin viljandi að skekkja samkeppnisstöðu íslensks sjávarútvegs? Er þetta kannski liður í ESB-aðildaráfergju sitjandi ríkisstjórnar, að veikja íslenskan sjávarútveg og draga úr samkeppnishæfni þessarar grundvallarstoðar í íslensku atvinnulífi? Spyr sá sem ekki veit.

Að lokum: Ég verð að segja að mér finnst vera hér á ferð fullkomið skeytingarleysi gagnvart landsbyggðinni og umsögnum sveitarfélaga og landshlutasamtaka nánast stungið undir stól og gert lítið úr. Ég veit að ég er ekki ein um þá skoðun. Að halda því fram í alvöru að þessar skattahækkanir í formi veiðigjalda hafi ekki áhrif á sveitarfélög þar sem allt að 50% útsvarstekna koma úr sjávarútvegi stenst auðvitað enga skoðun.

Og fyrst ég hef tíma þá ætla ég aðeins að fá að tala um jafnréttisáhrifin. Það kemur fram í greinargerðinni að ekki liggi fyrir kyngreind gögn um þá aðila sem greiða veiðigjald og til að fá heildarmynd af áhrifum frumvarpsins væri hugsanlegt að fara í frekari rannsóknir til að afla þessara gagna en ekki verði ráðist í þá vinnu að svo stöddu þar sem ekki sé talið að frumvarpið hafi mælanleg áhrif á jafnrétti kynjanna. Ég bara spyr: Hverjir vinna í vinnslunum? Við stöndum frammi fyrir því að mögulega flyst vinnsla í stórum stíl úr landi. Sem sagt samantekið: Engin áhrif á neinn.