veiðigjald.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur fyrir fína ræðu. Það er áhugavert að lesa umsagnir sveitarfélaga í samráðsgáttinni, þegar málið var tekið fyrir. Í umsögn Grýtubakkahrepps er það ágætlega tekið fyrir hvernig ástandið er og hvað fólk úti í smærri byggðunum er hrætt við. Með leyfi forseta langar mig að vitna í umsögnina:
„Sterklega er varað við þeim álögum sem nú eru áformaðar með hækkun veiðigjalda. Veruleg hætta er á að þær muni hægja á fjárfestingum og þar með nýsköpunar- og þróunarstarfi. Minni fjárfesting veldur keðjuverkandi samdrætti hjá afleiddum greinum. Til lengri tíma getur þetta síðan leitt til minnkandi arðsemi, minnkandi tekna fyrir þjóðina, einstaklinga, sveitarfélög og ríkið. Það er nefnilega ekki sjálfgefið að glæsileg fiskvinnsla sé rekin á Grenivík.“
Á Grenivík er vinnsla og það eru 3.000–4.000 tonn sem fara í gegnum húsið þar á ári. Þar hefur verið fjárfest mikið í fullkomnum græjum í þessari nýsköpun sem við þekkjum, Völku og öllum þessum búnaði, þetta hafa verið gríðarlegar fjárfestingar. Nú veit ég að hv. þingmaður hefur einmitt verið að vinna að verkefnum sem snúa að íslenskri matvælaframleiðslu og uppbyggingu, komið að slíkri vinnu. Eins og hv. þingmaður kom inn á í ræðu sinni eru menn hræddir við áhrifin á þekkingarsamfélagið, hversu áhrifin eru mikil þar. Það kemur fram í þessari umræðu að 56% einkaleyfa á Íslandi koma í gegnum sjávarútveginn, það var komið inn á það í ræðu hér í gær. Hvernig lítur þetta út ef við förum aðeins yfir samkeppnishæfni Íslands í þessu samhengi varðandi það sem verið er að leggja til í frumvarpinu?