veiðigjald.
Frú forseti. Þetta mál snýst nefnilega um samkeppnishæfni Íslands. Það eru ekki margar greinar á Íslandi þar sem við búum við einhverja alvörusamkeppnishæfni á Íslandi. Það er sjávarútvegurinn. Við erum góð í að framleiða græna raforku og erum þekkt fyrir að vera með fallegt land og góðar samgöngur og í gegnum tengimiðstöð í Keflavík höfum við byggt upp öfluga ferðaþjónustu. Þetta er svona grunnurinn. Síðan höfum við verið að byggja þessa fjórðu stoð á síðustu árum, og gengið gríðarlega vel. En hún, þessi fjórða stoð, hefur einmitt að miklu leyti snúist um sjávarútveginn, eins og ég kom inn á, í gegnum einkaleyfi. Það er áhugavert.
Síðan er það þetta með landsbyggðarskattinn. Ég hef margoft komið inn á það í þessari umræðu og ég held að það sé bara mjög skýrt — ég mæli með að hv. þingmenn lesi umsögn Grýtubakkahrepps um landsbyggðarskattinn og hver þau óttast að áhrifin verði af þessu máli, hvaða afleiðingar það getur haft inn í framhaldið. Það kemur fram í þessari umræðu að þetta fellur fyrst og fremst á þau 15% íbúa landsins og atvinnulíf þeirra sem búa utan Hvítár-Hvítár svæðisins.