156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[18:27]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir annað andsvar. Það var engin spurning, var það? Nei, það var engin spurning. Ég vil því taka mið af því sem hv. þingmaður var að ræða hér um og ítreka að ég hef áhyggjur af því að heildarskattbyrði minnki en það er náttúrlega mikilvægt að heildarskattsporið lækki þá ekki til langs tíma. Ef heildarskattsporið lækkar, sem ég óttast, þá er það náttúrlega bara augljóst mál að geta fyrirtækja til að fjárfesta og stækka frekar verður minni.