veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir góða ræðu. En hvað erum við að ræða hér? Hver er þessi leiðrétting? Jú, hún er sú að hæstv. ríkisstjórn og hv. stjórnarþingmönnum finnst enginn munur á því að ef þú átt einbýlishús sem er metið á 100 milljónir og fasteignaskatturinn er 33% og svo allt í einu kemur bæjarfélagið og segir: Nei, heyrðu, fasteignamatið er 200 milljónir, en það er enn þá 33% fasteignaskattur. Þú borgar þá 33 millj. kr., segjum það, í staðinn fyrir 66 millj. kr. Það er það sem það snýst um og það er það sem dr. Ragnar Árnason og dr. Birgir Þór Runólfsson hafa bent á, að þetta er ígildi 71–83% tekjuskatts. Það er það sem er verið að tala um. Ég vona að hv. stjórnarþingmenn hætti að tala um þetta sem leiðréttingu og fari að átta sig á því hvers lags högg og áfall þetta er, ekki bara fyrir atvinnugreinina heldur byggðarlögin eins og lýst hefur verið hér í ræðum og farið mjög vel yfir.
Mig langar að spyrja hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur. Nú sagði hv. þm. Eydís Ásbjörnsdóttir í ræðu og gaf það í skyn hér í andsvörum að hún væri opin fyrir því að fyrirtæki sem myndu þurfa að fara í hagræðingaraðgerðir við að fá á sig 70–80% skatt, þyrftu mögulega að fara í hagræðingaraðgerðir, sem ætti ekki að koma neinum á óvart — að hugað yrði að því að beita viðkomandi fyrirtæki refsingum ef þau þyrftu að fara í hagræðingaraðgerðir af því að þau ættu ekki fyrir skattinum eða þyrftu að hagræða í rekstrinum til að eiga fyrir þessum skatti. Hvað finnst hv. þingmanni um það að ríkisstjórnin ætli jafnvel að fara að beita fyrirtækin (Forseti hringir.) refsingum ef þau ætla að fara í hagræðingar til að mæta skattinum?