156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[18:31]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég heyrði þessa ræðu líka, ég held að það hafi verið í gær eða alla vega einhvern tímann í þessari umræðu. Ég varð hvumsa og ég skynja á hv. þingmanni að hann er líka hvumsa. Mér finnst raunar með ólíkindum að fyrirtækjum sem þurfi að bregðast við skattahækkunum með hagræðingu sé hótað aðgerðum, að það sé bara hægt að grípa til einhverra aðgerða af hálfu valdhafanna, ríkisstjórnarinnar. Mér finnst það náttúrlega með ólíkindum og ég bara frábið mér slíkt tal. Þetta stenst enga skoðun. Það er ekkert hægt að hóta fyrirtækjum því — ef þau sjá fram á, sem þau munu flest hver gera við þessa skattahækkun, að þurfa að hagræða — að það hafi einhverjar afleiðingar, ófyrirséðar afleiðingar, að þau verði þá kannski enn frekar skattlögð, gjörsamlega í botn, og gert út af við þau. Hvað veit ég? Ég meina hvað er átt við með svona orðum, að það sé hægt að bregðast við? Það væri bara fínt að fá útskýringar á því. Mér finnst í raun og veru með ólíkindum að stjórnarliðar standi hér uppi í þessu virðulega púlti og hóti útgerðum sem þurfa að bregðast við þegar skattar eru hækkaðir.