156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[18:33]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það liggur alveg ljóst fyrir að aðgerðir sem þessar hljóta að kalla á mögulega samþjöppun í greininni. Í umsögn Samtaka dragnótamanna segir í niðurlagi, með leyfi forseta:

„Að mati stjórnar samtakanna er ekki ákall frá þjóðinni að veiðiheimildum skuli vera ýtt á færri hendur.“

Þetta er mjög skýrt sem kemur frá Samtökum dragnótamanna sem eru einyrkjar í sjávarútvegi. Og það er alveg ljóst að gjaldið er of hátt og ef gjaldið væri sanngjarnt þá þyrfti ekki að vera að gefa afslætti út og suður um allan bæ Það eru ákveðnir aðilar sem ráða ekki við gjaldið og þrátt fyrir að búið sé að gefa einhverja afslætti þá er gjaldið enn of hátt fyrir alla.

Ég spyr því hv. þingmann: Telur hv. þingmaður ekki einsýnt, hver er hennar tilfinning fyrir því, að það verði jafnvel samþjöppun í greininni í framhaldi af þessu?