veiðigjald.
Virðulegur forseti. Við ræðum hér breytingar á lögum um veiðigjald. Þetta virðist vera stærsta mál ríkisstjórnarinnar og ég ætla nú bara að hrósa hæstv. ráðherra fyrir að hafa tekið aðeins þátt í umræðunum hér, ég sé hana reyndar ekki núna en ég treysti á að hún sé hér frammi að fylgjast með,og stjórnarliðar hafa líka verið duglegir að verja þetta mál. Við sáum hér á mætingu og þátttöku í gær að það er greinilegt að stjórnarflokkarnir leggja mikla áherslu á þetta mál.
Virðulegur forseti. Þetta er auðvitað skattahækkun og það virðist einhvern veginn vera þannig hjá þessari ríkisstjórn að það er einsýnt að það sem hæstv. ríkisstjórn er að leggja hér fyrir þingið eru skattahækkanir. Það er reyndar farið fram í fjölmiðlum með alls konar húllumhæi í kringum einhverjar hagræðingaraðgerðir og annað og óskað eftir alls konar tillögum, en ég hef ekki séð eina tillögu um það rata inn í þingið, í þinglega meðferð. En við höfum séð tillögur um skattahækkanir og sölu á ríkisbanka. Sölu á ríkisbanka fagna ég reyndar en ekki skattahækkun.
Þegar þessi ríkisstjórn tekur við þá er auðvitað ljóst að það hefur verið mjög dýrt að koma henni saman. Það eru loforð sem ja, sérstaklega einn stjórnarflokkurinn var með sem kostuðu mikla peninga. Þar af leiðandi hafa allir blautir draumar Viðreisnar, sem stundum vill kalla sig hægri flokk og segist ekki ætla að standa fyrir skattahækkunum, horfnir út um gluggann þegar þarf að fjármagna þessi dýru kosningaloforð.
Grunnatvinnuvegirnir okkar eiga augljóslega að finna fyrir því. Hér ræðum við sjávarútveginn, sem er nú sá atvinnuvegur sem hefur bjargað þjóðinni í gegnum allan þann ólgusjó sem við höfum glímt við. Svo hefur líka verið boðuð álagning á ferðaþjónustuna, sem er nú að verða stærsta atvinnugreinin okkar og bjargaði okkur í gegnum síðustu áskoranir sem við glímdum við. Og ég bíð bara eftir frekari skattahækkunartillögum á t.d. nýsköpunina og skapandi greinar. Það hlýtur að vera næst á dagskrá. Þetta er auðvitað í engu samræmi við það sem til að mynda hæstv. forsætisráðherra, hagfræðingurinn, lét hafa eftir sér á Viðskiptaþingi þegar hún talaði um mikilvægi þess að stækka kökuna, sem er frasi sem ég þekki allvel, enda höfum við Sjálfstæðismenn alltaf talað fyrir því. Og það er nákvæmlega það sem við erum að tala um hér; mikilvægi þess að stækka kökuna. Að sjá til þess að sjávarútvegurinn sé enn þá sú burðarstoð sem hann hefur verið í gegnum tíðina og tengdar atvinnugreinar. Við skulum ekki gleyma því að þetta snýst ekki bara um að draga fisk úr sjó og selja á erlendum mörkuðum og auka þannig útflutningstekjur, heldur hefur orðið alger bylting í nýsköpun, til að mynda með afurðir sem áður var hent í ruslið eða út í sjó, eða þá í alls konar tækniþróun. Ég veit að allir hér inni eiga að gera sér grein fyrir því.
Ráðleggingar fjármálaráðs hafa hingað til verið þær að við þurfum að auka framleiðni og verðmætasköpun. Hæstv. forsætisráðherra hefur tekið undir þetta og sagt að stjórnvöld þurfi að stuðla að aukinni framleiðni og nýsköpun í atvinnulífinu. Og þetta er málið sem við höfum í höndunum. Þetta er málið sem er stærsta málið hjá hæstv. ríkisstjórn á þessu þingi, þ.e. að finna leiðir til að taka meira fé út úr þessari burðaratvinnugrein okkar, langstærsta málið.
En hvað segir þá atvinnulífið við þessum tillögum sem hér liggja fyrir? Virðulegur forseti. Ég ætla að drepa aðeins niður í umsögnum Samtaka atvinnulífsins. Hér segir, með leyfi forseta:
„Samtökin mótmæla því harðlega að aðeins hafi verið veittur vikufrestur til að setja fram athugasemdir við frumvarpið, en þær breytingar sem lagðar eru til fela í sér kúvendingu á rekstrarumhverfi lykilatvinnugreinar á Íslandi. Enginn rökstuðningur hefur komið fram til að réttlæta þessi óvenjulegu vinnubrögð.“
Einmitt. Þetta eru ekki bara mín orð, þetta eru orð frá Samtökum atvinnulífsins.
Í þessu frumvarpi er verið að fara eitthvað sem margir hafa kallað norsku leiðina. Til að reyna að finna einhvers konar markaðsvirði er ákveðið að horfa til Noregs og talið að markaðsvirði þar eigi að geta verið grunnurinn að skattlagningu á Íslandi. Í umsögn frá Samtökum atvinnulífsins er farið ágætlega yfir ríkisstyrki í sjávarútvegi. Þar segir m.a., með leyfi forseta:
„Í Noregi hins vegar eru styrkirnir að stórum hluta beinar ívilnanir og niðurgreiðslur, til viðbótar við rannsóknir og eftirlit. Um þessar mundir eru auknir ríkisstyrkir til fiskveiðiþjóða innan Evrópusambandsins ræddir á vettvangi Evrópuþingsins.“
Sem er auðvitað annað mál sem við vitum að er stórt mál hjá hæstv. ríkisstjórn; að koma okkur inn í Evrópusambandið. Þannig að hér virðist allt vera að beinast í eina átt: Tökum upp norska leið eða evrópska leið í sjávarútvegi, þrátt fyrir að öllum ætti að vera það ljóst að sjávarútvegur á Íslandi er einna best rekni sjávarútvegur í heimi, gefur af sér mest fyrir þjóðarbúið í heild sinni, heldur uppi byggð í landinu, er með öflug fyrirtæki, fjölda manns sem vinna fyrir þessi fyrirtæki og afsprengin í nýsköpun og tækniþróun eru svakaleg.
Ég ætla að halda áfram með það sem Samtök atvinnulífsins segja, þar sem þau ræða um óvissuálag fyrir allar atvinnugreinar:
„Gjörbreytt rekstrarumhverfi sjávarútvegs, einnar undirstöðuatvinnugreinar landsins, á örfáum vikum, án samráðs og sáttar við atvinnugreinina, mun draga úr fjárfestingu í sjávarútvegi og þeim greinum sem þjónusta sjávarútveg og tengjast honum. Slík vinnubrögð og þau viðhorf stjórnvalda sem birst hafa að undanförnu í garð verðmætasköpunar skapa enn fremur nýtt óvissuálag sem fyrirtæki í öllum atvinnugreinum á Íslandi munu nú þurfa að taka tillit til.“
Við skulum aðeins horfa til þess í hvaða umhverfi við erum í alþjóðasamhenginu. Er allt bjart þar? Nei, við lifum vissulega á miklum óvissutímum þar sem verið er að hóta tollastríði. En ríkisstjórn Íslands, hæstv. forsætisráðherra, sem einhvern tímann talaði fyrir aukinni verðmætasköpun — þetta er málið sem lagt er til. Setjum enn meiri óvissu á grunnatvinnuvegi Íslands. Það hlýtur að vera leiðin áfram.
Það eru ekki bara Samtök atvinnulífsins sem segja eitthvað. Hér er umsögn frá Félagi skipstjórnarmanna sem segir reyndar, með leyfi forseta:
„Við viljum taka fram að við erum hlynntir því að greitt sé sanngjarnt veiðigjald fyrir afnot af fiskveiðiauðlindinni, en teljum varhugavert að hækka það svona mikið. Ef veiðigjaldið er hækkað umfram sársaukamörk fyrirtækjanna, er hætt við að:
Útflutningur á óunnum fiski aukist, það er ódýrara að láta vinna fiskinn erlendis.
Hætt er við að minni og meðalstór fyrirtæki lifi hækkunina ekki af, þau sameinist eða verði keypt af stærri fyrirtækjum.
Sveitarfélög sem hafa haft tekjur af lönduðum afla, útsvari fiskvinnslufólks, munu mögulega bera skarðan hlut frá borði, ríkissjóður verður af tekjum, arður af virðisauka fiskvinnslu flyst úr landi.“
Og svo mætti telja lengi áfram. Aftur: Þetta eru ekki mín orð. Þetta eru orð sem liggja fyrir í umsögnum í samráðsgáttinni. Þannig að það er alveg ljóst að það frumvarp sem við ræðum hér hefur þegar fengið falleinkunn. Jú, frumvarpið tók einhverjum örlitlum breytingum eftir umsagnir í samráðsgátt en engan veginn til að koma til móts við þær umsagnir sem þar bárust.
Virðulegur forseti. Ég ætla að halda áfram að vísa í umsagnir og nú ætla ég að reyna að höfða til sveitarstjórnarhjarta margra þingmanna hér inni. Ég veit að margir þingmenn hafa starfað á sveitarstjórnarstiginu og áttað sig á mikilvægi þess. Sveitarstjórnarstigið hefur reglulega lagt áherslu á það að við hér á þinginu horfum til hagsmuna sveitarfélaganna, hlustum á það sem þau hafa fram að færa og tökum tillit til þess sem þau segja.
Með leyfi forseta, í umsögn frá bæjarráði Vestmannaeyja er aftur mótmælt mjög stuttum fresti til samráðs og skorti á gögnum með frumvarpsdrögunum. Þar er farið yfir það að tæp 40% af útsvarsgrunni Vestmannaeyjabæjar á árinu 2024 kom frá sjávarútvegi — 40% af útsvarstekjum. Og við sem höfum starfað á sveitarstjórnarstiginu vitum að það er stærsti og mikilvægasti tekjustofn sveitarfélaganna.
Fjarðabyggð segir það sama. Þau lýsa eindreginni andstöðu við fyrirhugaða hækkun veiðigjalda. „Boðuð hækkun er bæði illa tímasett og óábyrg, sérstaklega í ljósi loðnubrests og núverandi skattaumhverfis sjávarútvegsfyrirtækja.“ Og þau halda áfram.
Grundarfjarðarbær segir það sama. Þau eru líka með rétt um 40% af útsvarstekjum Grundarfjarðarbæjar, byggja á sjávarútvegi, litlum og meðalstórum útgerðarfyrirtækjum og vinnslu.
Ég er auðvitað bara að taka eitthvað af handahófi því að ég held að það séu 26 umsagnir frá sveitarfélögum og þær eru allar neikvæðar. Þær eru allar á þessa vegu. En hvað hefur hæstv. ríkisstjórn hugsað sér að gera fyrir sveitarfélögin í landinu? Þau hafa nefnilega verið með miklar yfirlýsingar um að nú eigi að vinna með sveitarstjórnarstiginu. Það er reyndar þannig samkvæmt sveitarstjórnarlögum að það ber að leggja mat á öll frumvörp um hvaða áhrif þau kunni að hafa á sveitarstjórnir. Það er í 129. gr. sveitarstjórnarlaga. En það er frumvarp fyrir þinginu, frumvarp sem liggur inni í umhverfis- og samgöngunefnd sem gengur út að ganga enn lengra og leggja enn meiri áherslu á það. Þar segir í 1. gr:
„Ef fyrirsjáanlegt er að stjórnarfrumvarp, stjórnvaldsfyrirmæli eða aðrar stefnumarkandi ákvarðanir af hálfu ríkisins muni hafa fjárhagsleg áhrif á sveitarfélög skal viðkomandi ráðherra tryggja að fram fari sérstakt mat á þeim áhrifum.“
Hvar er það mat í því frumvarpi sem hér liggur fyrir? Það liggja fyrir allar umsagnir þessara sveitarfélaga og hér hafa hv. þingmenn sagt: Nei, við höfum engar áhyggjur, þetta hefur örugglega ekki nein áhrif. Er með þessu verið að tala niður til kjörinna fulltrúa á sveitarstjórnarstiginu? Vita þau ekkert hvað þau eru að tala um þegar þau senda inn umsagnir um frumvörp?
Það segir líka í þessu frumvarpi:
„Þegar mat á fjárhagslegum áhrifum stjórnarfrumvarps, fyrirhugaðra stjórnvaldsfyrirmæla eða annarra stefnumarkandi ákvarðana liggur fyrir skal matið þegar lagt fyrir Samband íslenskra sveitarfélaga og því gefinn hæfilegur frestur til umsagnar.“
Og hér eru sveitarfélögin að kvarta yfir því að þau fengu eina viku. Ég veit ekki hvort hæstv. ráðherra hefur átt eitthvert samtal við Samband íslenskra sveitarfélaga en ég ætla að leyfa mér að efast um að svo sé. Það segir reyndar líka í þessu ágæta frumvarpi að verði ágreiningur um niðurstöðu mats á fjárhagslegum áhrifum geti Samband íslenskra sveitarfélaga eða viðkomandi ráðherra vísað ágreiningsefninu til samstarfsnefndar ríkis og sveitarfélaga.
Þetta er sem sagt frumvarp sem liggur inni í umhverfis- og samgöngunefnd núna til að útfæra enn frekar 129. gr. sveitarstjórnarlaga til að tryggja að það sem við afgreiðum úr þessum sal hafi ekki áhrif á sveitarfélögin og hafi það áhrif þá liggi það öllum ljóst fyrir hver þau áhrif eru. Þannig að ég held að það sé algjörlega einsýnt að þegar þessari umræðu lýkur hér og þetta mál fer til hv. atvinnuveganefndar þá þurfi hv. umhverfis- og samgöngunefnd líka að taka þetta mál fyrir og fjalla um það út frá því frumvarpi sem þar liggur fyrir um hvernig við ætlum að mæta sveitarfélögunum.
Það er margt meira sem hægt væri að fara yfir í þessum efnum en ég hef svona tæpt á því sem veldur mér hvað mestum áhyggjum. Við erum auðvitað bara í 1. umræðu þessa máls og ég er hér fyrst og fremst að vísa í áhyggjur og orð annarra, mætra aðila úti í bæ sem hafa verulegar áhyggjur af því frumvarpi sem hér liggur fyrir. Hæstv. ráðherra er auðvitað að koma með það í þinglega meðferð. Og nú vil ég aftur nota tækifærið og hvetja hv. þingmenn bæði í atvinnuveganefnd og í umhverfis- og samgöngunefnd til að grafa ofan í þetta mál og tryggja það að það komi ekki aftur hér inn í þingsal í 2. umræðu öðruvísi en að því sé búið að breyta eða búið að koma til móts við þær athugasemdir sem hér liggja fyrir.
Það sem ég tek út úr þessari umræðu, þessari áherslu hæstv. ríkisstjórnar á þetta mál, er að hér er ekki verið að leggja til hagræðingu í ríkisrekstri. Hér er ekki verið að leggja til aukna framleiðni eða verðmætasköpun, sem eru þó þau atriði sem fjármálaráð hefur lagt áherslu á á síðustu árum og síðasta ríkisstjórn lagði mikla áherslu á og hæstv. núverandi forsætisráðherra sem hagfræðingur hefur ítrekað talað fyrir mikilvægi þess. Við höfum ekki séð eitt, ekki eitt slíkt mál inni á þessu þingi en við höfum svo sannarlega fengið að sjá málin sem varða skattahækkun.