156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[18:53]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Gnarr fyrir þetta skemmtilega andsvar og fyrir áhugaverða spurningu um pínuponsulítið mál í samanburði við það risastóra mál sem hér er á dagskrá. Veiðikortið þekki ég ágætlega, ég hef keypt það fyrir son minn sem hefur gaman af að veiða. Er það skattur? Nei, líklega ekki. Ég hef bara aldrei velt þeirri spurningu fyrir mér. En eitt veit ég, veiðigjaldið sem við fjöllum um hér er skattur. Það má alveg ræða það sem einhverja auðlindarentu, aðgang að því sem við eigum — já, já, ég get alveg fallist á það. En það stendur í frumvarpinu að þetta sé skattur. Veiðikort er ágætt og það er bara mjög fínt að fólk kaupi sér veiðikort og fari að veiða sér til matar. Það er bara hið besta mál.