156. löggjafarþing — 35. fundur, 6. maí 2025.
veiðigjald.
351. mál
Virðulegi forseti. Já, þetta með hugtakanotkunina — það er mjög mikilvægt í þessari umræðu að við notum rétt hugtök og séum örugglega alltaf að tala um sama hlutinn. Sumir segja hækkun, aðrir segja leiðrétting og síðan, þegar við erum að ræða þessa gjaldtöku, já, eins og með veiðikortið, hvað er sanngjarnt og hvað er ósanngjarnt og hvað er hátt og hvað er lágt, sem er líka afstætt. En ég þarf að kaupa allan útbúnað sjálfur og oft veiði ég ekki neitt.