veiðigjald.
Virðulegur forseti. Aftur þakka ég hv. þingmanni fyrir andsvarið. Umboð þessarar ríkisstjórnar er vissulega sterkt. Þau eru hér með meiri hluta og stýra þinginu og eru í ríkisstjórn. Aftur segir hv. þingmaður: Er ekki tímabært að leiðrétta veiðigjöld? Ég átti orðastað við hv. þm. Jón Gnarr hér áðan um það. Það stendur í frumvarpinu að þetta séu skattar. Það á að hækka þá, það á að tvöfalda þá og þetta er þar af leiðandi skattahækkun. Þetta er engin leiðrétting, það er bara orðhengilsháttur. En hv. þingmaður spyr hvort ekki sé kominn tími til að leiðrétta veiðigjald. Ég náði reyndar ekki að segja mikið um mína skoðun á þessum málaflokki í ræðunni áðan af því að ég var aðallega að vísa í þær umsagnir sem liggja fyrir, sem ég held að hv. þingmaður, sem kemur af sveitarstjórnarstiginu, ætti nú að horfa til og hlusta á. Hann ætti að hlusta á það sem sveitarfélögin í landinu eru að hafa áhyggjur af því að ég hef oft átt samtöl við þennan ágæta hv. þingmann um (Forseti hringir.) mikilvægi þess að þingið hlusti á sveitarstjórnir.
Virðulegur forseti. Varðandi skoðanakannanirnar þá er ég ekki eins og sumir þingmenn og stjórnmálaflokkar og snýst með þeim. (Forseti hringir.) Ég hef skoðun á málinu og ég stend með þeirri skoðun en ég hleyp ekki eftir því sem síðasta Gallup-könnun segir.
(Forseti (EÁs): Forseti biður hv. þingmann um að virða ræðutíma.)