156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[19:02]
Horfa

Kristján Þórður Snæbjarnarson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir hennar ræðu. Það sem mér finnst áhugavert að hlusta á er þessi umræða Sjálfstæðisflokksins um skattamál og skattkerfi og skattahækkanir. Hér er verið að leggja til ákveðna leiðréttingu á veiðigjöldum, gjöldum sem eru greidd fyrir afnot af auðlindum. En mig langar samt að spyrja fulltrúa Sjálfstæðisflokksins út í skattahækkanir sökum þess að flokkurinn virðist hafa miklar áhyggjur af þeim. Samt sem áður hefur flokkurinn aukið skattbyrði almennings á síðustu árum og áratugum. Af hverju stígur flokkurinn þau skref og básúnar síðan út eitthvað allt annað um aðra?