156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[19:03]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Og aftur: Leiðrétting er orðhengilsháttur. Þetta er skattur. Það er verið að hækka skatt. En við getum svo algjörlega tekið umræðuna um það hvort það megi breyta einhverju í því hvernig veiðigjöldin eru reiknuð út. Ég er alveg til í þá umræðu. Eins og ég sagði áðan þá komst ég ekki einu sinni yfir að lýsa skoðunum mínum á frumvarpinu enda erum við oft í 1. umræðu að vísa í eitthvað eins og þessar umsagnir, og ég hvet hv. þingmann til að lesa þær umsagnir. Ég veit hvaða störfum hv. þingmaður gegndi áður en hann kom inn á þing og hversu mikið hann hefur í gegnum tíðina lagt upp úr því að senda bæði ríkisstjórninni og Alþingi Íslendinga góðar og gildar umsagnir og krafist þess að á það sé hlustað hér á þingi.

Hv. þingmaður vill lýsa því yfir hér að skattbyrði á almenning á Íslandi hafi aukist verulega undir stjórn Sjálfstæðisflokksins. Það er bara rangt. Það er rangt vegna þess að lífskjör á Íslandi eru með því besta sem þekkist. Hér hefur kaupmáttur aukist trekk í trekk en ég skal vera fyrst til að viðurkenna að (Forseti hringir.) skattar á Íslandi eru of háir og þeir ættu að vera miklu lægri. (Forseti hringir.) Ég skal styðja þannig mál sem koma frá hæstv. ríkisstjórn.