veiðigjald.
Frú forseti. Ég þakka aftur hv. þingmanni andsvarið. Hér er spurt út í kílómetragjaldið og kolefnisgjaldið er einmitt eitt af því sem útgerðin var mjög ósátt við. Það hefur verið í stefnu okkar Sjálfstæðismanna og reyndar hafa margir, eins og hv. þingmaður tekur undir, tekið undir þá leið að skattleggja, taka gjald, fyrir kolefnislosun svo að þeir borgi sem menga. Það er aðferðafræði sem við í Sjálfstæðisflokknum höfum tekið undir. Kílómetragjaldið þarf svo að útfærast með sanngjörnum og eðlilegum hætti en það var lagt fram af fyrrverandi formanni Sjálfstæðisflokksins á sínum tíma og varðar algera umbyltingu í því hvernig við skattleggjum, hvernig við tökum tekjur inn í ríkissjóð fyrir að fólk noti hér vegi. Það er alveg skýrt. En ég veit ekki hvað það tengist aftur á móti norsku leiðinni sem hér er verið að leggja til því að svokölluð „leiðrétting“ á þessari skattlagningu — þá er verið að tala um (Forseti hringir.) að horfa til markaðsverðs í Noregi. Ég bara næ ekki utan um þá hugmyndafræði. (Forseti hringir.) En stóra málið eru þær áhyggjur sem umsagnaraðilar (Forseti hringir.) eru að senda okkur inn. Þetta er hvatning til þeirra sem í nefndinni sitja, að hlusta á þá umsagnaraðila.
(Forseti (EÁs): Forseti ítrekar það við hv. þingmann að ræðutími er ein mínúta.)