156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[19:08]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er rétt, mér finnst þetta ósköp einfalt. Leiðrétting á sköttum til hækkunar er skattahækkun. Það er alveg sama hvernig á það er litið. Þannig að það sé bara á hreinu. Mig langar hins vegar í þessu örstutta andsvari að taka undir áhyggjur hv. þingmanns af umsögnum sveitarfélaganna í landinu. Það er í raun og veru með ólíkindum að öllum þessum umsögnum, sem allar eru á sömu bókina lærðar, er svarað hér. Rökin í greinargerð ráðuneytisins eru eftirfarandi, með leyfi forseta:

„Í frumvarpinu eru því ekki lagðar til breytingar sem hafa bein fjárhagsleg áhrif á tekjustofna eða útgjöld sveitarfélaga.“

Það sem menn eru að segja, virðulegur forseti, er einfaldlega þetta: Vegna þess að þessu er ekki beint sérstaklega til sveitarfélaganna metur ríkið það þannig að ráðuneytið þurfi ekki að meta áhrifin sérstaklega á sveitarfélögin þrátt fyrir að öllum sé ljóst að (Forseti hringir.) þetta mun hafa og getur haft gríðarleg áhrif á sveitarfélögin eins og þau benda á í umsögnum sínum.