veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég verð að segja að mér finnst þessi svör í greinargerðinni óboðleg, algerlega óboðleg. Ég vona að hv. þingmenn í nefndinni taki undir það og sérstaklega hv. þingmenn sem unnið hafa á sveitarstjórnarstiginu og hafa haft fyrir því að senda hingað inn umsagnir.
Það ber líka að nefna hér frumvarp frá hæstv. iðnaðarráðherra, um breytingar á 129. gr. sveitarstjórnarlaganna, sem verið er að fjalla um í umhverfis- og samgöngunefnd. Er ríkisstjórnin með annarri hendinni að segja hér að mögulegar breytingar á útsvarstekjum sveitarfélaga hafi ekki áhrif á fjárhag sveitarfélaga? Hvað er verið að segja? Hér fara hljóð og mynd ekki saman. Ég held að hv. umhverfis- og samgöngunefnd þurfi að fjalla sérstaklega um þetta frumvarp með hliðsjón af þeim svörum sem borin eru á borð fyrir þingið í þessari greinargerð.