veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna á þessu lagafrumvarpi um veiðigjöld. Auðlindagjöld af nýtingu takmarkaðra náttúruauðlinda eru alþjóðlega viðurkennd leið og það er sannarlega bæði sanngjarnt og réttlátt að þjóðin fái ábata af nýtingu á fiskinum í sjónum, sameiginlegri auðlind sinni. Ég tel líka að það sé svigrúm til að hækka veiðigjöldin. Það svigrúm er hins vegar mjög misjafnt eftir stærð og eðli útgerða, samþættingu vinnslunnar og það er alls ekki sama hvernig það er útfært. Útfærslan hefur, eins og við höfum rætt hér í dag, áhrif á bæjarfélög og landshluta sem horfa verður til. Það er þess vegna sem greiningar og gögn skipta máli. Það er einfaldlega grunnurinn að því að við getum vitað hvort þær ákvarðanir sem við tökum leiði til þeirrar niðurstöðu sem við ætlum okkur, að skilgreint markmið náist. Í rekstri er fyrirsjáanleiki líka lykilatriði. Það er því eðlilegt að umræðan um hækkun veiðigjalda hafi valdið titringi. Við verðum einfaldlega að tryggja að útflutningsgreinar Íslands séu samkeppnishæfar og það á sérstaklega við núna þegar við erum að tala um meiri óvissu í alþjóðakerfinu á alþjóðamörkuðum.
Umræðan um veiðigjöldin og umræðan um sjávarútveg heilt yfir hefur hins vegar ekki alltaf verið nógu uppbyggileg undanfarið. Það að útgerðin hafi nánast hótað lokun vinnslu, að skella í lás á landsbyggðinni um leið og hækkun gjalda er nefnd á nafn, ýtir undir deilur. Það myndar gjá og slík gjá er vatn á myllu frekari deilna. Hún mun ýta undir og hefur þegar ýtt undir að sjávarútvegurinn verði talaður niður í stað þess að hann sé talaður upp í samfélaginu og það mun auka pólitískt umrót um hann.
Við verðum að horfast í augu við að saga margra byggðarlaga eftir að kvótakerfinu var komið á er oftar en ekki saga missis og deilna í stað sögu sóknar og trausts. Því þarf sjávarútvegurinn að nálgast þessa orðræðu af auðmýkt. Á sama tíma mega stjórnmálin ekki nálgast umræðuna eins og sjávarútvegurinn sé helsti óvinur þjóðarinnar. Við erum að tala um hryggjarstykkið í atvinnulífi Íslendinga, sérstaklega atvinnulífi á landsbyggðinni. Það að tala á þessa vegu, sama hvort við erum að tala um orðræðu ríkisstjórnarinnar eða útgerðarinnar, er einfaldlega ekki gagnlegt. Það er ekki góð leið til sátta almennt. Við vitum að þar sem útgerðirnar hafa fest rætur hafa samfélög dafnað á marga vegu. Nægir að horfa til Vestmannaeyja, nægir að horfa til Dalvíkur, Hafnar og fleiri staða. Tekjur sveitarfélaga eru meiri vegna afleiddra starfa sem tengjast sjávarútvegi, svo sem vinnslu, hafnarstarfsemi, iðnaði, og svo eru fjölmargar þjónustugreinar, mennta og menningarlíf, sem eru háðar blómlegu atvinnulífi í sjávarbyggðum og það er einmitt þetta víðfeðma net, sem samfélög um allt land treysta á, sem hvílir á grunni sjávarútvegsins. Þar sem hann hefur byggst upp hefur þróun sjávarútvegsins og styrkur til skemmri og lengri tíma áhrif langt út fyrir starfsemi sjálfrar útgerðarinnar. Það er þess vegna sem greiningar og gögn, þegar gera á breytingar, skipta máli. Við verðum að taka upplýstar ákvarðanir svo að áskoranir og áhættur séu lágmarkaðar. Það er líka gott fyrir okkur að muna að mörg af áhugaverðustu fyrirtækjum landsins í hátækni, svo sem Marel og Kerecis, eru sprottin út frá sjávarútveginum. Sóknartækifærin eru ýmis, eins og Genis og Primex á Siglufirði, sem bæði auka verðmætasköpun úr sjávarfanginu okkar, eru dæmi um. Greinin hefur líka náð árangri í loftslagsmálum í gegnum bætta orkunýtni fiskiskipa og er sú vegferð rétt að hefjast.
Já, kæri þingheimur. Margt hefur áunnist og tækifærin eru óteljandi. Við höfum einfaldlega byggt upp samkeppnishæfni og einstaka þekkingu á heimsvísu á þessu sviði sem aðrar þjóðir horfa til. Og það er verðmætt. Deilur um greinina hafa hins vegar lengi verið við lýði og veiðigjöldin, sem við ræðum í dag, eru einmitt liður í því að ná lendingu, sátt sem stækkar kökuna fyrir samfélagið. Til þess að stuðla að því vil ég spyrja hæstv. ráðherra tíu spurninga sem ég óska eftir svörum við, til að styðja við að öll ákvarðanataka um veiðigjöldin sé vönduð og að hún standist tímans tönn:
1. Af hverju fer ríkisstjórnin þá leið að breyta aðferðafræðinni í stað þess að hækka hlutfallsprósentu veiðigjaldsins? Ég á von á því að ástæðan sé sú að hækkun á verðmætamati skili meiru til ríkisins og hafi um leið minni neikvæð áhrif á útgerðina. Á hinn bóginn leiði hækkun á skattprósentunni af sér meiri áhrif á kostnað fyrir útgerðina sem skapi mögulega hvata til útfærslu bókhalds til að draga úr áhrifum. Ég geri ráð fyrir þessu en þetta er einmitt dæmi um greiningar sem hefði verið gott að fylgdu frumvarpinu.
2. Hefur ríkisstjórnin gert mat á áhrifum af sveiflum á fiskverði í Noregi til að sjá hvort þetta nýja kerfi sem lagt er til verði sjálfbært og stöðugt til lengri tíma litið? Er hér verið að skapa áhættu, að ríkið verði háð tekjustofni sem sveiflast meira með ytri aðstæðum sem bætist þá við náttúrulega sveiflu í auðlindinni sjálfri?
3. Skoðaði ríkisstjórnin hvort hærra verðmæti fisks í Noregi skýrist að einhverju leyti af því að Norðmenn eiga vinnslur í öðrum löndum þar sem launakostnaður er lægri? Skekkir það heildarmyndina í þessum samanburði?
4. Hvernig ætlar ríkisstjórnin að tryggja að aukning tekna skili sér í ákveðin verkefni á landsbyggðinni eins og vegakerfið? Við vitum í dag að það er engin ástæða til að ætla að tekjur sem aflað er skili sér ekki í annað. Ég spyr vegna þess að það er svo mikilvægt, ef við erum að leita leiða til að ná fram sátt, að orðum fylgi efndir.
5. Voru aðrar leiðir, svo sem þrepaskiptur tekjuskattur, skoðaðar til samanburðar? Hér á ég við til samanburðar við hækkun veiðigjalda.
6. Skoðaði ríkisstjórnin útfærslur í þá veru að aukið veiðigjald færi að hluta til beint til sveitarfélaga? Ég spyr því að mikið hefur verið rætt um auðlindastefnu og rætt hefur verið um það t.d. í orkunýtingu að hluti af tekjum renni beint til sveitarfélaganna þar sem orkan er framleidd. Hefur eitthvað sambærilegt verði rætt hér eða skoðað?
7. — Þetta tel ég vera sérstaklega mikilvæga spurningu sem hefur verið mikið rædd hér í þinginu í dag og í gær: Er búið að reikna út heildaráhrif þess ef útgerðin sker niður eða hættir starfsemi á móti auknum tekjum frá veiðigjöldunum? Sumar útgerðir hafa keypt sig inn í greinina, a.m.k. að hluta, og eru skuldsettari en aðrar, aðrar eru skráðar á markað og búa við ákveðnar væntingar um arðsemi. Orðræða útgerðarinnar hefur verið sú að það þurfi að ráðast í niðurskurð til að mæta gjöldunum svo hægt sé að greiða niður skuldir eða ná væntri arðsemi. Því spyr ég hæstv. ráðherra: Hefur ríkisstjórnin gert einhverja greiningu á því hvað slík niðurstaða myndi þýða fyrir ólík byggðarlög, störf, afleiddar tekjur og starfsemi skyldra fyrirtækja heilt yfir? Hefur hún mögulega hugleitt einhvers konar mótvægisaðgerðir til að bregðast við slíkri niðurstöðu? Ég veit að slík niðurskurðarviðbrögð væru ekki óskastaða en það er samt eitthvað sem getur vel orðið raunin og er því mikilvægt að reikna út og skoða.
8. Er búið að meta hvaða áhrif breytingarnar hafa á hvata til nýsköpunar í íslenskum sjávarútvegi? Fjárfesting í nýsköpun er mikilvæg fyrir orkuskiptin og það eru stór verkefni fram undan þar ef ríkisstjórnin á ekki að þurfa að greiða sektir fyrir að ná ekki lögbundnum árangri í orkuskiptunum. Sömuleiðis er nýsköpun mikilvæg fyrir alþjóðlega samkeppnishæfni Íslands. Hvaða áhrif hefur frumvarpið í þessu samhengi?
9. Hver er röksemdafærsla ríkisstjórnarinnar að fara í hækkun með svo stuttum fyrirvara? Það vita allir í rekstri og í alþjóðlegri samkeppni að slík sveifla, sérstaklega á sama ári, er brött. Kemur til greina af hálfu ríkisstjórnarinnar að vinna þetta í þrepum, eins og mér skilst að hafi upphaflega verið hugsunin?
10. Eru greiningar á áhrifum frumvarpsins á minni útgerðir fullnægjandi, t.d. á milli þeirra sem hafa keypt sig að mestu inn í greinina og þeirra sem hafa kannski að mestu erft kvóta? Hefði þurft ólíka nálgun til að ná fram sanngirni í ábata eftir þessum grundvallarmun?
Ég spyr hæstv. ráðherra þessara spurninga og óska eftir svörum. Ég spyr ekki vegna þess að ég sé á móti veiðigjöldum. Ég spyr einmitt vegna þess að ég styð gjaldtöku af greininni en ég veit líka að útfærslan skiptir öllu máli fyrir árangurinn og fyrir það hversu vel tekst til. Við viljum vinna þannig að málinu að búa vel um alla hnúta frá byrjun. Í upphafi skal endirinn skoða. Ég leyfi mér að nefna að lögin frá 1990, sem skilgreindu fiskinn í sjónum sem þjóðareign, voru gott skref en lögin frá 1995 sem leyfðu framsal og höfðu ýmsar afleiðingar, eru akkúrat dæmi um löggjöf sem hefði þurft meiri gögn og greiningar um, það hefði þurft að skoða betur hver niðurstaðan yrði. Það er akkúrat það sem við erum að kalla eftir, gögn og greiningar til þess að við séum að vanda hlutina, ekki bara til að loka einhverju gati í fjárhagsáætlun ríkissjóðs fyrir næsta ár heldur þannig að vel takist til inn í framtíðina.
Ég vil líka leggja áherslu á það við þingheim allan að við skulum passa að gjaldtaka á auðlindir landsins sé ekki almenn vinstri/hægri pólitík eða höfuðborg/landsbyggð pólitík. Vönduð auðlindagjöld eiga heldur aldrei að verða skyndiviðbrögð við stöðu ríkissjóðs til skamms tíma. Það þrífst engin atvinnugrein í slíku umhverfi. Auðlindagjöld sem eru vönduð eiga fyrst og fremst að vera framtíðarpólitík, umgjörð sem byggir á langtímahagsmunum, sem nær út fyrir einstök kjörtímabil og er hugsuð bæði til að þjóna samfélaginu í dag sem og næstu kynslóðum. Hér erum við að sá fræjum fyrir þær, rækta þannig að framtíðin uppskeri. Við skulum því útfæra veiðigjöldin skynsamlega og á þá vegu að kakan stækki fyrir byggðarlög sem eiga allt sitt undir í greininni og fyrir þjóðina. Förum í þá átt. Lægjum öldurnar í orðræðunni og nýtum tímann hér á Alþingi vel til þess að eiga innihaldsrík skoðanaskipti, kalla eftir upplýsingum sem þörf er á. Með vel ígrunduðum ákvörðunum um gjaldtöku getum við náð sanngjarnari niðurstöðu, meiri sátt og meiri árangri í mikilvægum auðlindamálum Íslands.