veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Kristjáni Þórði Snæbjörnssyni fyrir spurninguna. Ég er akkúrat að spyrja þessara spurninga til að fá öll púslin inn í heildarmyndina. Ég hef áhyggjur af því að við séum að miða við verð á erlendum markaði þó að það sé þessi ákveðni markaður. Ég útiloka ekki að það sé sanngjörn niðurstaða en ég spyr þessara spurninga til að fá ólík púsl inn í heildarmyndina. Hv. þingmaður spurði um afstöðu mína. Eins og ég kom inn á í byrjun ræðu minnar þá tel ég auðlindagjöld, og veiðigjöld þar með, vera sanngjarna leið í auðlindanýtingu til að tryggja að þjóðin fái ábata af sameiginlegri auðlind. En útfærslan skiptir öllu máli og ég bara nefni hér, eins og ég sagði áðan, að við erum t.d. með veigamiklar ákvarðanir, eins og frá 1995, þar sem við hefðum þurft að fara í miklu meira áhrifamat. Þess vegna er verið að kalla eftir gögnunum, ekki vegna þess að eitthvað annað búi þar að baki.