156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[20:03]
Horfa

Kristján Þórður Snæbjarnarson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir svörin. Það sem ég velti fyrir mér í þessu er auðvitað þessi lykilþáttur og eftir að hafa farið í samráð með frumvarpið í samráðsgátt, fengið afstöðu þjóðarinnar þar, þeirra sem hafa sent inn umsagnir, þá sér maður að fólk er hlynnt þessu. Síðan er tekið tillit til þeirra athugasemda sem hafa verið sendar inn og þegar verið er að vekja upp áhyggjur þá er búið að taka tillit til þeirra þátta. En það er eitt sem ég náði ekki alveg úr fyrstu spurningu hv. þingmanns þar sem hún nefnir þessa útfærslu í samanburði við að breyta prósentunni. Ég hjó eftir því að þá væri einhvern veginn auðveldara að eiga við bókhaldið, ég áttaði mig ekki alveg á hvað hún meinti þar. En ég held að þetta sé gagnsæjasta og eðlilegasta fyrirkomulagið.