veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir framhaldsspurninguna. Af því að hv. þingmaður var að tala um fullnægjandi greiningar og að búið sé að taka tillit til ólíkra þátta þá finnst mér vanta í greiningar og gögn þessa byggðagreiningu sem hefur verið kallað eftir. Það er bara dæmi um eitthvað sem hægt er að gera betur og góður hugur stendur að baki því að kalla eftir slíkri greiningu. Varðandi nálgunina, hv. þingmaður er að tala um prósentuhækkun versus það að miða við verð í Noregi, þá hefur það bara ólík áhrif. Í raun og veru má segja að prósentuhækkunin gefi ákveðinn sveigjanleika upp á það hvernig maður útfærir tekjur og gjöld í bókhaldi þannig að niðurstaðan er kannski aðeins meira hreyfanleg en í hinu tilfellinu. En þetta er aftur dæmi um samanburð, af því að við erum að tala um samanburð, sem hefði verið gott að sjá í greiningum svo að þingheimur gæti auðveldlega farið yfir það og tekið afstöðu til þess. Og nú svara ég þessu sem hálfgert akademískt nörd, ég hef áhuga á því að hafa gögnin fyrir framan mig.