156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[20:07]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir sína góðu spurningu. Til að byrja með tek ég undir það að það er gríðarlega mikilvægt að viðhalda samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs. Ég held að við gerum okkur kannski ekki grein fyrir hversu viðkvæm sú staða er. Þetta eru viðskiptasambönd og aðgangur að mörkuðum þar sem er mikil samkeppni og það skiptir þar af leiðandi gríðarlega miklu máli að fyrirsjáanleikinn varðandi gjaldtöku og auðlindagjöld sé til staðar. Þess vegna kom ég inn á það áðan að auðlindagjöld eiga aldrei að verða skammtímaviðbragð eða vinstri/hægri pólitík. Við eigum alltaf að vera að hugsa um þetta til lengri tíma.

Varðandi þær tölur sem hv. þingmaður nefnir þá bara ítreka ég það sem hefur komið fram hér að við þurfum að fara varlega í það að stíga skref sem geta haft áhrif á þessa samkeppnishæfni. Ég undirstrika þó að ég tel að (Forseti hringir.) það sé svigrúm til að hækka veiðigjöldin en það svigrúm er misjafnt milli útgerða, (Forseti hringir.) bæði vegna stærðar þeirra og annarra þátta, (Forseti hringir.) t.d. hvort fyrirtækin eru mjög skuldsett eður ei.

(Forseti (EÁs): Forseti ítrekar að ræðutími er ein mínúta.)