veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir spurninguna. Ég get tekið undir það, eins og ég kom inn á í spurningu nr. 7 til hæstv. ráðherra, að maður hefur kannski mestar áhyggjur af þessum þætti. Ef skorið er niður á móti gjöldum til að tryggja vænta arðsemi eða til að mæta skuldastöðu þá getur það auðvitað haft áhrif á sveitarfélögin þannig að ég er sammála hv. þingmanni um að þarna þurfum við að greina hlutina betur. Ég undirstrika þó að ég held að það sé svigrúm til að hækka veiðigjöldin en þessi áhrif þarf að meta þannig að við vitum nákvæmlega hvað við erum að horfa á þegar gjaldtaka er sett á. Við erum alltaf að tala um langtímaáhrif og það er ekkert auðvelt að taka breytingar til baka. Ef vinnsla lokar eða annað slíkt er ekki auðvelt að vinda ofan af því. Við þurfum því að skoða útkomuna vel.